Helgin
Herborg og Bjössi eignuðust yndislega prinsessu í fyrrinótt, þann 19.02.6, og öllum heilsast vel. Ég bíð spennt eftir myndum af henni! Á svona stundum bölva ég vali mínu á háskóla! Ég vildi að ég væri heima svo ég gæti séð litla krílið á meðan hún er ennþá kríli:( Þau stækka svo hratt þessi börn.
Ég tók á móti tveimur börnum í nótt, bæði strákar, á fæðingadeildinni í nótt og fór næstum því að grenja í bæði skiptin:) Mikið var þetta yndislegt! Ég er ekki frá því að ég geti enn hugsað mér að verða kvensjúkdóma- og fæðingalæknir, eins og ég sagði þegar ég byrjaði í náminu! Ég var líka svaka stolt, fékk að finna hversu mikil útvíkkunin var og gat sagt það upp á hár, og fékk svo að taka á móti sjálf:-) Ég er á fæðingadeildinni alla þessa viku, þannig að ég næ vonandi að tárast nokkrum sinnum í viðbót!
Svo fór ég út að hlaupa á laugardaginn, minn venjulega hring. Ég var ein af því að J er byrjaður á svaka æfingaprogrammi með vini sínum 5 daga vikunnar, þar sem þeir m.a. hlaupa úti 2svar í viku. Annars finnst mér miklu skemmtilegra að hafa smá félagsskap. En ég fór sem sagt út með útvarpið í eyrunum og þegar ég var hálfnuð hringinn, ætlaði ég að hoppa yfir einhverja ójöfnu, nema að ég veit ekki hvernig það átti sér stað....ég flaug á hausinn fyrir framan fullt af fólki!:( Týpisk ég!! Ég auðvitað skammaðist mín svo að ég hoppaði á fætur, hristi lappirnar og hélt bara áfram:-) Svo kom ég heim og fékk plástur á hnéð hjá Jákupi:) Hahahaha, mér líður eins og 5 ára krakka!
