Saturday, May 10, 2008

Veðurblíða og hlaupabóla

Það eru loksins komnar nýjar myndir af Kristinu á barnaland. Þessi er tekin í morgun þegar fröken ofurmorgunhress var að gramsa í gegnum nestið hans pabba síns (lesist: 5 kókdósir, hann nennir ekki að smyrja nesti!) áður en hann yfirgaf okkur yfir helgina til þess að fara að vinna. Við mæðgur erum búnar að vera ALeinar í dag og búnar að gera ýmislegt: fara í búð og kaupa allt sem tilheyrir svona hita (25 stig), vatnsmelónu, jarðaber, fötu og skóflu. Kristina er búin að fara með lubbann í klippingu. Og við fórum í dýragarðinn og í hjólatúr. Þar sáum við tvo svani með ungana sína og endur með ungana sína. Þvílíkt falleg sjón, og við drifum okkur af hjólinu til þess að komast nær, ásamt fleirum. Þá fór annar svanurinn að reyna að drekkja ungunum hjá öndunum, og gekk einna harðast að einum þeirra. Mér fannst þetta hræðilegt! Ég sá ekki hver afdrif ungans urðu, því við drifum okkur í burtu frá þessari grimmd.
Það á að vera heitt áfram á morgun og byrja að rigna á mánudaginn. Best að njóta veðursins á morgun líka.
Hlaupabóluveiðar þáttur 2 byrjar á morgun. Ein í mæðragrúppunni er með smitað barn, við reynum að fá þau til að knúsast á morgun:Þ

0 Comments:

Post a Comment

<< Home