Nýjar myndir
20 vikna sónar:
Hér er hún meira að segja að sparka hressilega:)

Ein spúkí mynd:


Þetta er sem sagt lítil prinsessa! Og við erum auðvitað afar ánægð með það:) Ég var vissulega búin að halda því fram í byrjun að ég vildi helst stelpu, en þegar leið á, fann ég það að mér var að sjálfsögðu alveg sama. En það er gaman að tengja þetta litla kríli einhverjum meira áþreifanlegum væntingum núna þegar við vitum það.
Við erum mjög ánægð í "sumarfríinu" okkar, það er gaman og krefjandi í vinnunni og svo hittum við fjölskylduna við hvert tækifæri þess á milli. Ég er búin að fá lánað hjól frá Siggu frænku og hjóla í vinnuna suma daga. Ég hef gott af smá hreyfingu, enda læðast kílóin á mig þessa dagana. Bumban tók einhvern vaxtarkipp síðustu daga og ég er alveg steinhissa þegar ég þarf að víkka út buxur og annað.
