Ég ætla að skrifa niður hvað ég er búin að vera dugleg á meðan ég get montað mig af því ;) Ég er búin að vera dugleg að æfa undanfarið, og bara síðustu vikuna er ég búin að hlaupa, synda eða spinna alla daga síðan á laugardaginn. Ég mældi mig í dag og er búin að missa 14cm dreift á læri, mjaðmir, mitti og upphandlegg :D Við fögnuðum því svo með því að skreppa til Þýskaland og fylla byrgðirnar af gosi, og misstum okkur aðeins í nammikaupum þar! Úps! Er annars nánast ekkert búin að borða sælgæti í lengri tíma! Myndin að ofan er tekin í bílnum.
Ég er líka búin að baka allt brauð á heimilinu síðustu vikurnar, og er hrifnust af speltbrauði með lyftidufti sem er mjög auðvelt að baka. Deiginu er bara skellt saman og inn í ofn í brauðformi, það þarf ekkert að hefast. Auðvelt og gott :)
Það er allt annað að eiga heima í svona litlu bæjarfélagi en stórbæjunum sem ég er vön. Ég hika ekki við að spjalla við hvern sem er, hvort sem er í búningsklefanum, saunu í leikfiminni eða í leikskólanum. Það er gaman að vera farin að heilsa einhverjum í búðinni nánast á hverjum degi ;) Hehehe crazy kellan sem er aðflutt og þekkir engan! Í gær sat ég í sauna eftir spinning og spjallaði við 70 ára konu sem kemur í hvern einasta spinningtíma, eða 4 sinnum í viku. Hún sagði mér að hún færi líka að æfa á morgnana í 1,5 tíma. Maðurinn hennar er hjartveikur og með sykursýki og nennir ekki úr húsi, og hún eyðir því tímanum í ræktinni til þess að breyta aðeins um umhverfi! Mögnuð að standa í öllu þessu sprikli!
Þegar maður er aðfluttur og mætir í svona litla líkamsræktarstöð fer það heldur ekki fram hjá neinum að maður sé nýr! Spinningkennarinn vatt sér strax að mér í gær (fyrsti tíminn minn hjá þessum) og spurði hvort ég hefði mætt í spinning áður. Ég játti því en ákvað samt að hafa varann á og tilkynna það að ég hefði verið að koma úr fæðingarorlofi -þá myndi hann kannski vera vægur við mig ;) Strax á öðru lagi misskildi ég kauðann eitthvað og hjólaði með allt of mikinn þunga í staðinn fyrir létt, og var því í nokkur lög að ná mér eftir það. Og hann sýndi enga vægð! Helvítið á honum. En svo kom hann til mín eftir tímann og hrósaði mér fyrir að vera í góðu formi....hmmmmmm.....kannski þegar maður er langyngsti aðilinn í salnum....af 6! :)
Í vikunni var ég á rölti niðri í miðbæ með Írisi kl.8.30 um morguninn, og uppgötvaði þá litla búð á einu horninu sem selur föt. Ég hafði ekkert tekið eftir henni áður, enda fór ekki mikið fyrir henni. Búðin var að sjálfsögðu lokuð, en ég skrapp þangað daginn eftir til að skoða, því það stóð í glugganum að flest allt væri á 100kr - þeim vantaði pláss. Ég sá fyrir mér hálfgerðan flóamarkað en ákvað að skoða samt;) Þarna voru svo Tommy Hilfiger, Björn Borg og Lee vörur, allar á 100 kr, alveg sama hvað upprunalega verðið var! Ég kom því út með fullan poka af fötum, eða 7 flíkur á mig og 2 á Jákup, fyrir 900kr (sumt kostaði 900kr fyrir stykkið) :D Jákup VARÐ að kíkja þangað daginn eftir og kom heim með þrenna skó og einar buxur -sem pössuðu svo engan veginn á hann en smellpössuðu á mig :) hihi
Annars er ég farin að kíkja á bókasafnið í hverri viku, og lána hverja bókina á fætur annarri, auk kvikmynda. Stundum sest ég bara niður og les blöðin í smá stund áður en ég sæki Kristinu. Ég ljósritaði nokkrar uppskriftir í vikunni úr Alt for damerne sem ég ætla að prófa í næstu viku. ALLT AÐ GERAST! lol

6 Comments:
Djö...líst mér vel á þig! Ekkert smá dugleg í ræktinni og greinilega bara busy í fæðingarorlofi í nýjum bæ, bara flott:)
vá rjúkandi stemmari hjá þér Ásta.
Hrikalega er ég ánægð með þig, ég meiraðsegja fyllist andagift og langar að demba mér af stað líka þegar ég les allan dugnaðinn þinn.
Flott að heyra að þú ert að falla í smáborgaragírinn HAHAHA ... svona þorpslíf þarf ekki að vera svo slæmt.
Kv. frá okkur hjónum, HD
Mikið svakalega ertu dugleg! Ég kannast við þetta með að búa í litlu bæjarfélagi, mér finnst það svo skemmtileg stemning. Ég er byrjuð að skokka, og grannarnir fylgjast alltaf með mér, hálf-flissandi, hihí.
Knus Valdis
Gott að heyra að ég hef jákvæð áhrif Helga Dröfn :D
Já allt að gerast í smábæjunum! Líst vel á skokkið Valdís!
Dugnaður í þér ! Frábært að þér skuli líka lífið vel á nýja staðnum :)
Takk!
Ég verð alltaf ringluð þegar það stendur Dísa....er það Þórdís hans Davíðs eða Ásdís Kristins? :)
Post a Comment
<< Home