Desemberbakstur
Ég nennti ekki að læra seinnipartinn! Ég fór því heim, henti af mér töskunni og fór að sækja Kristinu snemma. Við fórum svo í búð og keyptum inn fyrir afmælisveisluna um helgina. Já, litla snúllan verður 2ja ára á þriðjudaginn. Ótrúlegt hvað tímanum líður! Svona leit hún út fyrir ári síðan:D Svo fórum við að baka og búa til konfekt. Gaman!
Á morgun erum við búin að bjóða okkur sjálfum í mat hjá tengdó og ætlum að halda upp á afmælið hennar með þeim. Við komum með köku með okkur, þessa á efstu myndinni. Það eru 3 botnar með kremi á milli undir marsípani:D Vonandi er hún góð!
Á sunnudaginn koma svo vinir hennar Kristinu og foreldrar þeirra og þá verður bökuð ný kaka, bollur og fleira. Alltaf gott að borða, hehe. Það verður líka gaman að fá gesti og vera svolítið saman, því nú fer kennslu að ljúka (næsta föstudag) og þá er daglegum samskiptum okkar foreldranna úr bekknum að mestu lokið. Það verður svolítið skrítið að byrja nýja lífið á næsta ári. Og skrítið að hitta ekki allt þetta fólk á hverjum degi í skólanum. Við erum öll farin að telja niður dagana fram að prófum, og ekki minnst fram að partýinu okkar þann 15.jan! Hehe það verður skondið, það drepast eflaust allir fyrir kl.23 vegna ofkeyrslu síðustu vikna. -En við verðum fleiri en bara bekkjarfélagarnir í afmælinu og við hlökkum líka til að sjá það fólk;) Kristina er alveg sérstaklega spennt fyrir því að hitta Klöru vinkonu sína.
