Friday, May 16, 2008

Brjálæðingur

Það er dóttir mín! Hún lét sig gossa fram úr rimlarúminu í tvígang áðan af því að ég var að reyna að láta hana sofna sjálfa. Stórhættulegt! Hvað á maður að gera við svona börn??

Við vorum boðin í mat til Valdísar og Gauta í kvöld og fengum dýrindismáltíð; mexíkanska súpu og pizzabrauð, og súkkulaðiköku og þeyttan rjóma í eftirrétt. Ég rúllaði þaðan út, ég var svo södd! En mikið rosalega var þetta gott og huggulegt! Verst að ég á ekki barn sem hægt er að láta sofna hvar sem er og taka svo með sér heim, þannig að við urðum að fara snemma heim að hátta hana. Við verðum að endurtaka leikinn fljótlega hérna hjá okkur, svo við fáum heilt kvöld úr þessu:) Takk fyrir okkur!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home