Sumarið er komið!
Lífið er yndislegt....það er allt að því 30 stiga hiti í dag og ég er komin með v-laga sólbruna á bringuna og rauða bletti á sitt hvora öxlina:) Bara að ég væri ekki að fara í próf á miðvikudaginn....:(
Ég fékk annars heimsókn af tveimur lögregluþjónum í morgun -kl.5!!! Ég vaknaði við að það var legið á dyrabjöllunni okkar, og á meðan ég dröslaðist á fætur í slopp þá heyrði ég að það var hringt á fleiri dyrabjöllum í húsinu. Þá var það ss lögreglan sem vildi komast inn í stigaganginn. Ég opnaði auðvitað fram á gang til að sjá hvað væri á seyði, og þá voru þeir að leita að vinkonu minni sem flutti héðan fyrir mörgum mánuðum síðan. Þeir höfðu nefnilega fundið veskið hennar sem var stolið af henni fyrir 2 dögum síðan!! Ég sagði þeim bara eins og var, að hún byggi ekki lengur í húsinu og þá báðu þeir mig um að hringja í hana! Ég þverneitaði að hringja og vekja hana klukkan fimm að morgni til, þannig að þeir skildu veskið eftir hjá mér og fóru.
Þegar ég vaknaði aftur í morgun varð ég að fara fram og athuga hvort mig hafi nokkuð verið að dreyma þessa vitleysu! Ég hef aldrei vitað annað eins. Þeir hafa örugglega haldið að þeir væru að gera góðgerð dagsins (eða næturinnar!), að vekja allt húsið til að koma af sér veskinu. Mig grunar að þeir hafi bara verið að spara sér pappírsvinnuna og viljað leysa þetta svona. En ég vil frekar fá minn nætursvefn takk!! Auk þess var veskið tilkynnt stolið fyrir 2 dögum síðan og þeir hefðu getað séð það ef þeir hefðu athugað það, og svo hringt í dag -á sómasamlegum tíma:) Eitthvað finnst mér að þeir ættu að nota vinnutímann sinn í að handtaka einhverja ólátabelgi í Vollsmose í staðinn fyrir að keyra út týnt og fundið:) Ég sé þetta fyrir mér gerast á Íslandi....
