Wednesday, March 31, 2010

Páskafrí!



Síðan síðast er ég búin að eignast lítinn yndislegan frænda sem kom í heiminn eins skjótt og vel eins og eldri systkini hans :) Ég hlakka til að kynnast þeim litla gutta!

Hér er páskafríið formlega byrjað. Jákup var búinn að vinna snemma í dag, þannig að ég skutlaðist til Aabenraa að kaupa í matinn fyrir helgina. Ég er reyndar aldrei þessu vant engan veginn í eldamennskustuði þessa dagana og fannst því kvöl og pína að reyna að ákveða matseðil helgarinnar! Ég keypti svo sitt lítið af hverju: efni í pizzu, pastarétt, lambalæri með púrrulauk fetaosti og sítrónum, og einn Jamie Oliver rétt með hörpudisk og rucola. Í dag eldaði ég hins vegar bara grjónagraut sem mallaði á meðan ég fór út að hlaupa :) Ég hljóp í síðustu viku 5,5 km á 37 mínútum með nágrannakonu minni, en í dag fór ég sama hring á 30 mín sléttum :) Þegar ég kom heim var grauturinn akkurat tilbúinn og við settumst við snæðing. Kristina bað um meira 4 sinnum og meira að segja Íris smakkaði grautinn þegar hún var búinn með sinn hrísgraut! Já, Íris er loksins komin með smá matarlyst aftur og farin að borða meirihlutann af því sem við eldum fyrir hana. Svona eru börnin einföld! Ef ég stend í eldhúsinu klst saman að elda eitthvað nýtt og spennandi nennir Kristina varla að smakka það, en ef ég elda grjónagraut af hreinni leti, þá borðar hún eins og hestur! :)
Kristina svaf svo vært í morgun að við ákváðum að leyfa henni bara að sofa þangað til hún vaknaði, og Jákup keyrði einn af stað í vinnuna. Þegar við mæðgur vöknuðum rétt rúmlega 7 tókum við því með stakri ró, og fórum ekki af stað í leikskólann fyrr en rúmlega 9. Kristina vildi fá að hjóla þangað, og ég var hálfsmeyk um að hún myndi gefast upp á hálfri leið og ég myndi þurfa að leiða hjólið og keyra vagninn... En hún stóð sig þvílíkt vel og hjólaði alla leið í leikskólann, en það tók um 40 mín! Á leiðinni sáum við dauða mús sem hefur verið umræðuefni dagsins síðan. Íris var líka dugleg og sat í fyrsta sinn alla leiðina í vagninum og fylgdist með stóru systur :) Hún er annars enn mjög óstöðug við að sitja. En á móti er hún farin að velta sér um allt og snúa sér á gólfinu, og lætur ekkert stoppa sig.

Þegar ég kom heim úr búðinni seinnipartinn komu nágrannar okkar akkurat heim á sama tíma. Þetta er svolítið spes par, drykkfelld mjög og skrautleg til fara. Þau eru um fimmtugt, og eiga unglingsbörn. Þau fara amk einu sinni í viku yfir til Þýskalands að fylla á ölbyrgðirnar. Um daginn hrukkum við upp kl.2 að nóttu við það að þau voru í hörkurifrildi, og það hljómaði eins og þau væru hálfpartinn að slást líka. Lætin voru slík að við vorum á nippinu að hringja á lögregluna til að vera viss að ekkert gerðist, en þá róuðust þau niður. Svo keyra þau um á grænblárri druslu af mér óþekktu merki. Þau voru alla veganna að koma heim úr einhverjum leiðangri, hann sat í farþegasætinu með fangið fullt af sígarettupökkum, og hún keyrði. Sem var kannski eins gott, því hann virkaði ansi slompaður ;) Í því að ég er að stíga út um hurðina á bílnum kemst ég ekki hjá því að sjá hana stíga út úr bílnum sínum, og blasa þá við mér 2 naktar krumpaðar rasskinnar, 2 svartir nælonsokkar upp á læri og leopardpils um mittið sem hún flýtti sér að toga niður yfir fyrrnefndar kinnar. Og þá er ekki hjá því komist að nefna það að konan er með kryppu. Þetta outfit hefur komið mér fyrir sjónir einu sinni áður, og venst illa. Þegar ég sagði Jákupi frá þessari hressandi upplifun, sagði hann að honum finndist flott af þeim að eiga enn gott samlíf! :)

Plönin okkar fyrir páskana eru ansi afslöppuð. Ætlum að fara einn dag í legoland og fáum kannski kunningja í mat einn daginn. Annars ætlum við bara að taka því rólega, hvíla okkur og borða á okkur gat :) Gleðilega páska!

4 Comments:

At 11:09 PM, Blogger Unknown said...

Flottur matseðill, ég vildi að ég væri svona dugleg að elda eins og þú er vægast sagt hryllileg í þeirri deildinni!! Kristina ekkert smá dugleg að hjóla og þú að hlaupa, dúndurmæðgur!:)
2 naktar krumpaðar rasskinnar bwahahahahahahaha........alltaf gaman að eiga "góða" granna;)

 
At 1:59 AM, Anonymous Pálína said...

Úff, ekki líst mér á nágrannana miðað við þessa lýsingu :S sumt vill maður bara ekki vita um grannana...
Hafið það gott yfir páskana, mér líst sko vel á plönin hjá ykkur :)

 
At 11:32 AM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það Fjóla. Ég elska venjulega að elda, en það koma alltaf tímabil inn á milli þar sem mér dettur ekkert í hug, eins og öllum :)
Þetta var einum of mikið af hinu góða! Þau halda líka skrautleg partý af og til, en við erum svo þreytt að við sofum flest allt af okkur :)

 
At 11:55 AM, Anonymous Anonymous said...

Gott plan hjá ykkur, að slappa af og hafa það nice.
Grjónagrautur er alltaf góður. Hjá múttu borðast hann einmitt alltaf upp. Klassík!
Get nú ekki annað en skellt upp úr af þessari lýsingu á nágrönnum. Amk konunni. Veit ekki hvort ég myndi skella uppúr ef þau væru grannarnir mínir samt hehehehehe

En Gleðilega Páska og til lukku með nýja frændann
Helga Dröfn

 

Post a Comment

<< Home