Sunday, April 27, 2008

Helgin

Að hoppa saman í sófanum

Þær fengu ís í dýragarðinum

Við mæðgurnar vorum einar heima um helgina af því að pabbinn var að vinna. Við eyddum bróðurparti helgarinnar með þessari sætu stelpu og mömmu hennar. Við lékum saman, borðuðum saman og fórum í dýragarðinn í æðislegu veðri. Það var 19 stiga hiti í dag þegar best var, og það var æðislegt að spranga um á peysunni:-D Klara og Kristina eru búnar að kyssast og knúsast og eru ægilega góðar vinkonur. Það verður spennandi að sjá hvernig gengur næstu helgi, þegar Kristina ætlar að vera í pössun hjá Klöru á meðan haldið verður upp á afmælið hans Jákups.

Monday, April 21, 2008

Ulla

Ég er mikið búin að hugsa til fyrstu dagmömmu hennar Kristinar, Ulla. Við höfum ekkert haft samband við hana síðan Kristina hætti hjá henni, aðallega vegna þess að tíminn flýgur og Kristina er yfirleitt hjá dagmömmunni allan daginn. Ég er ekki viss um að Kristina muni neitt eftir henni eða strákunum hjá henni, Noah og Ahmed. En ég hringdi í hana áðan og spurði hvort við mættum koma í heimsókn á mánudaginn þegar Kristina er búin í bólusetningu kl.14. Loksins fann ég smugu á meðan krakkarnir eru hjá Ulla, svo við getum hitt þau öll í einu:) Ulla var himinlifandi, vildi endilega fá okkur í heimsókn, og sagði að fréttirnar myndu gleðja Noah mikið. Hann og Ahmed tala nefnilega ennþá um Kristinu (hún hætti um miðjan janúar) og eru búnir að skíra dúkkuna á staðnum eftir henni:-D Sætast í heimi!! Ég hlakka svo til að sjá hvort Kristina kannist við sig!

Sunday, April 20, 2008

Það er af sem áður var

Þegar ég var lítil og sæt fannst mér fátt skemmtilegra en að róla og fara í kollhnísa á járnstöngunum á róluvöllunum. Enda tókst mér einu sinni að losa mig við allar framtennurnar í einu við það að fleygja mér af hæstu stönginni!
Ég og Kristina fórum að horfa á pabba spila fótbolta og lékum okkur á róló við hliðina á meðan. Veðrið var æðislegt. Kristina mokaði í fötu og ég rólaði. Þarna voru líka 3 lítil hús sem hægt var að skoða, og svo járnstangirnar frægu. Mamman ákvað að sýna dóttur sinni listir sínar og fór tvo kollhnísa á meðan dóttirin tók andköf af hrifningu. En þessar listikúnstir ásamt róluferðinni höfðu einungis það í för sér að mér varð þvílíkt óglatt!:( Ferðum mínum í tryllitækin í tivoli fer einnig snarfækkandi, ég er greinilega að verða viðkvæmari fyrir svona snúningum með aldrinum.


Á meðan reyndi Jákup sitt besta til þess að koma í veg fyrir fjölskyldustækkun í framtíðinni með því að fá boltann í klofið í tvígang.

Saturday, April 19, 2008

Sumarfrí!

Nú verður aldeilis gaman hjá fjölskyldunni! Við erum búin að ákveða áfangastaðinn í sumarfríinu í sumar. Við ætlum að keyra til París, með einnar nætur gistingu hvora leið í Dusseldorff, og fara í Disneyland:-) 3 daga í Disney, og 3 daga inni í Louvre, Eiffelturninum og öðru gaman. Þarna er líka sædýragarður og annað sem við kíkjum kannski á. Mikið hlakkar okkur til!!:-)
Vonandi er Kristina ekki of lítil til að hafa gaman að þessu öllu saman. Við nenntum ekki á sólarströnd. En þetta er að öllum líkindum dýrara ef eitthvað er, en verður ógleymanlegt!

Að heilsufari Kristinar er það að frétta að hún er orðin hraust. Hún er að fá tvær augntennur, en annars bara hress og kát. Við erum voða fegin, og glöð og ánægð að fá glöðu stelpuna okkar aftur. Og við ætlum að njóta þess að fara á spítalann að heimsækja Rúni og Sóley, som urðu foreldrar í gær, með hrausta barnið með okkur:) Þau eignuðust lítinn strák.

Annars eru hlaupabóluveiðar framundan. Lene og Simon fóru á veiðar hjá Annette á fimmtudaginn, í von um að smita tvíburana báða í einu. Við erum svo búin að semja um að við komum í heimsókn um leið og það fer að kræla á bólum hjá þeim. Þá er hlaupabólan vonandi komin í hús fyrir sumarið (og það sem mikilvægara er: fyrir haustið!!). Hhehe, greyið börnin fá engu ráðið;-)

Sunday, April 13, 2008

Kristina er búin að öskra og grenja í ALLAN dag. Hún vaknar grenjandi og sofnar grenjandi. Ég hef átt betri daga. Ég held að ég geti hreinskilnislega sagt að þetta hafi verið með erfiðustu 5 dögum í lífi mínu. Og til að bæta ástandið er ég ekki í uppáhaldi lengur, hún vill bara vera hjá pabba sínum. Ég tek það fram að það er ekki af því að ég sé búin að missa þolinmæðina, hann er jafn hissa á þessu og ég.
Það er sem sagt ekki búið að gerast annað síðustu daga en að við höfum gengið um gólf með hana alla daga og hún hefur legið ofan á okkur á nóttinni. Við höfum alls ekki mátt leggja hana frá okkur, og hún hefur ekki leikið sér með dótið sitt í marga daga. Hún gengur óstöðugt og er búin að léttast. Hún borðar auðvitað nánast ekkert. En hitinn er farinn að lækka eftir að hún byrjaði á sýklalyfjum í gær.
Jú, ég gleymdi næstum því toppinum á öllu saman. Jákup þvoði þvott fyrir 4-5 dögum síðan og gleymdi að hengja hann upp. Ég spurði meira að segja hvort hann hefði munað það og hann sagði já. Í gær fór ég að þvo, og þar lá þvotturinn, ekki búið að hengja hann upp. Og allt myglað. Og þetta var að mestu fötin mín. Karlmenn.

Friday, April 11, 2008

Þvagprufur og letihaugar

Ég heyrði alveg stórkostlega athugasemd í dag. Ég og Kristina vorum í Rosengaardcentret að safna þvagi (önnur saga að segja frá því) og vorum að bíða eftir lyftunni til þess að komast með kerruna með okkur upp frá salernunum. Þá kom ung stelpa út af salerninu og byrjaði að ganga upp tröppurnar. Þá kallaði vinkona hennar til hennar: "af hverju tekurðu ekki lyftuna?!" Þetta var nota bene ein hæð:)

Ég hafði samband við lækninn okkar í dag, sem bað mig um að koma með þvagprufu frá Kristinu. Við þurftum því að fara í apótekið og kaupa poka sem hægt er að líma á hana inni í bleyjunni. Svo gaf ég henni að borða og drekka og labbaði um á meðan ég beið eftir að hún pissaði. Svo fórum við með prufuna til læknisins. Hún er með blóð og bakteríur í þvaginu, fyrir áhugasama:) En hún er ekki nógu slöpp til þess að verða lögð inn. Við eigum að skila annarri prufu til ræktunnar á mánudag.

Wednesday, April 09, 2008

Nú er komið nóg!

Ég gefst bráðum upp. Kristina er enn og einu sinni komin með háan hita. Í 5.sinn á 6 vikum. Og við bæði í klinik, þar sem við eigum að mæta alla daga, og Jákup að fara í próf aukalega á föstudaginn. Hún verður alltaf veik á miðvikudögum og er veik fram að laugardegi/sunnudegi.

Sunday, April 06, 2008

Svona eiga sunnudagar að vera!

Kristina að moka
Kristina, Klara og Sigga að borða nestið sitt


Klara að lesa fyrir Kristinu

Úti að borða á Jensens

Við áttum alveg yndislegan dag í dag. Við Kristina byrjuðum á því að fara í dýragarðinn með Klöru og Siggu á meðan pabbarnir voru að læra saman fyrir próf. Við mokuðum og róluðum og borðuðum nestið okkar. Svo fórum við í langan göngutúr á meðan stelpurnar sváfu. Svo komu Klara og Sigga í heimsókn til okkar og stelpurnar léku sér saman. Þegar Jákup kom heim, ákváðum við að fara út að borða fjölskyldan, í tilefni af því að við Jákup erum búin að vera saman í 6 ár. Það var rennibraut á staðnum sem Kristina klifraði sjálf uppí og renndi sér aftur og aftur. Mjög gaman. Að lokum kíktum við til Stine og David í óvænta heimsókn áður en við fórum heim.
Nenni ekki að byrja nýja viku á morgun....vildi óska að allir dagar væru sunnudagar.

Saturday, April 05, 2008

Setið að sumbli





Ég fór óvænt út að skemmta mér í gær. Það eru alltaf skemmtilegstu kvöldin! Við Halldís og Berglind byrjuðum heima hjá Berglindi með smá bjór, og fórum svo á Alibi þar sem Gunni vinur okkar var dj ásamt 2 vinum sínum. Þar dönsuðum við og spjölluðum við fullt af skemmtilegu fólki. Ég og Berglind enduðum á því að fá okkur pizzusneið á leiðinni heim og nóttinni lauk kl.4.30. Ég fer svo sjaldan orðið út að dansa, að ég var eiginlega hissa á öllum troðningnum á dansgólfinu:) Þetta eru oft hálfgerðar barsmíðar, maður fær hina ýmsu útlimi slengt í sig úr öllum áttum og bjórslettur yfir allt. Það að dansa er skondin sjón, því helminginn af tímanum er maður að slást um fermeterinn sem maður stendur á.
Hápunktur kvöldsins hlýtur samt að hafa verið þegar við Berglind vorum á barnum að panta okkur drykki. Berglind réttir mér allt í einu Corona bjór og bíður mér sopa á meðan við bíðum. Ég hikaði ekki við það, og tók góðan sopa. Þá var hún bara að grínast og átti ekkert í þessum bjór. Einhver hafði skilið hann eftir á barnum, og hún tók hann af borðinu beint fyrir framan nefið á mér án þess að ég tæki eftir því. Hún hélt ekki að ég myndi drekka af honum! Vægast sagt ógeðslegt, ég veit ekkert hver átti þennan bjór! Hehehe

Thursday, April 03, 2008

Pestarbæli

Við mægðurnar erum búnar að vera saman heima í dag, en feðginin voru heima í gær. Já, Kristina er lasin enn einu sinni. Hún er búin að vera veik með 39 stiga hita í nokkra daga fjórum sinnum á fimm vikum. Allveg klassískt þegar maður á að vera í fullri mætingu einhvers staðar. Ég útskýrði stöðuna á barnadeildinni í gær, og fékk að klára í gær, svo að Jákup gæti mætt í dag og á morgun. Hann er nefnilega bara í 2 vikur á geðdeildinni og átti eftir að uppfylla einhverjar kröfur til þess að ná.
Ég byrja á háls-nef- og eyrna á þriðjudaginn og hlakka til. Það á að vera mjög góð deild, og við fáum að gera margt. Það er búið að leggja skema fyrir allan mánuðinn til þess að sjá til þess að við náum öllu. M.a. förum við einn dag til háls- nef- og eyrna læknis á stofu niðri í bæ.
Jákupi tókst að gabba mig upp úr skónum 1.apríl. Hann sendi mér sms um að við værum búin að fá 4 sólarhrinsgvaktir aukalega í vinnunni, m.a. daginn fyrir og daginn sem hann á að fara í próf í næstu viku, og ættum því að taka 8 vaktir í allt þennan mánuðinn. Skipulagsheilinn minn byrjaði alveg fullblast að vinna, þetta var meira vesenið....ég þyrfti að taka tvær vaktir í röð svo hann kæmist í próf, og ef Kristina yrði lasin yrðum við að redda pössun osfrv. Svo kom sms "við fengum líka vakt í dag, 1.apríl!". Hehe, ég var hálfan daginn ennþá að átta mig á því að mánuðurinn yrði ekki stress þrátt fyrir allt!