Tuesday, October 24, 2006

Teddi gleuraugnaglámur

Í gær vorum við Jákup stödd í Fötex að versla. Við ætluðum bara að kaupa einn hlut en það læddust hinar ýmsu vörur í körfuna, m.a. súkkulaðidagatal (það er október -christ!), en það er önnur saga.... Við áleggjakælinn sáum við lítinn ljóshærðan strák í innkaupakerru með mömmu sinni. Hann var augljóslega blindur eða mjög sjónskertur og var með alla sömu takta og hreyfingar og litli frændi, hann Teddi! Hann setti m.a. hendurnar fyrir bæði augun og hallaði sér fram á handfangið á kerrunni, alveg eins og Teddi gerir þegar hann fær að sitja í innkaupakerru, sem er mikið í uppáhaldi. Ég hálf elti þau um búðina til að fylgjast með þeim:) Það fyndna er að auk hreyfinganna, voru þeir með sama ljósa hárið og að miklu leyti svipaðir í útliti. Ég hálf sé eftir að hafa ekki talað við þau, en ég var hrædd um að missa mig í tilfinningasemi og fara að grenja:S
Mikið saknaði ég litla strumpsins í gær!!:-) Pabbi hans var að setja saman andsetna myndaséríu af honum í gær, sjá hér!

Sunday, October 22, 2006

Marianna, systir hans Jákups, kom í heimsókn í gær og ég eldaði kjúkling, sem þurfti að fara aftur í ofninn af því að hann var ekki gegnumsteiktur! Ég fór bara eftir uppskriftinni:( Algert klúður.... En hann steiktist undir lokin og ég vona að ekkert okkar hafi fengið alvarlega magakveisu...:(
Ég var á vakt á geðdeild á föstudaginn og las hin ýmsu konublöð. M.a. las ég innréttingaumfjöllun þar sem ég tók eftir að hjónin höfðu tekið allar uppáhalds uppskriftirnar sínar og veggfóðrað einn skápinn í eldhúsinu með þeim. Ég ætti kannski að gera eitthvað slíkt, alla veganna þarf ég að finna fram uppskriftir af öllu því helsta og gera aðgengilegar. Annars fæ ég nefnilega ekkert annað að borða en pizzur og pylsur fyrstu vikurnar á meðan ég er með barnið á brjósti.....nema ég verði þeim mun meira multitasking!:-D

Tuesday, October 17, 2006

Ég elska....

....nýju saumavélina mína!:



Keypt í Þýskalandi:)

Innilegar hamingjuóskir til Hauks og Írisar, þau voru að eignast tvo yndislega stráka, sem ég er svo heppin að fá að skoða á morgun! Við Jákup ætlum að skreppa til Köben, og heimsækja litlu systur hans. Íris var sett á sama tíma og ég, í byrjun desember, og átti því 8 vikum fyrir tímann. Ég hlakka til að sjá litlu krílin og sjá með eigin augum hversu stór mín litla er núna:)

Thursday, October 12, 2006

Bíllinn minn!



Við eigum að vera að læra fyrir próf á morgun, en stór hluti dagsins hefur farið í að ná í bílinn, redda pening og keyra bíltúr:-) Við erum hæstánægð! Hvernig gátum við verið bíllaus svona lengi??:)
Nú verð ég að setjast niður og læra.....en ég er orðin svo syfjuð, langar helst að leggjast í rúmið og sofna......

Monday, October 09, 2006

Brummbrumm

Við erum búin að kaupa okkur bíl! Liggaliggalói!!
Þar sem við vorum svo yfirmáta hrifin af Skodanum hans pabba í sumar (hemhem...) skelltum við okkur á svoleiðis grip. Skoda Octavia 1998, 1,8 mótor. Glæsigripur í afalit (rauðbrúnn:)
Nú er ég búin að eyða morgninum í að hringja í banka og tryggingafélög til þess að athuga hver bíður best!
Bíllinn er tilbúinn eftir viku, nýskoðaður og gerður í stand. Getiði hvað við erum að fara að gera í haustfríinu:-D hehe

Já, og fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir, það eru myndir af barninu inni á barnalandi, undir sónarmyndir. Hún heldur áfram að stækka og sparka. Lífið er yndislegt:)

Tuesday, October 03, 2006

Á morgun...

...er ég að fara í þrívíddarsónar!! Og það meira að segja ókeypis:D Það er nefnilega þannig að einn af læknunum er að fara að prófa nýjar græjur, eða kenna á þær, veit ekki hvort, og vantar tilraunadýr. Ég og Tanja vinkona erum báðar að fara, og fáum klst hvor. Og svo fáum við CD með upptökum með heim:)
Þá get ég staðfest kynið aftur (er alltaf að hugsa hvort það gæti hugsast að þetta sé strákur þrátt fyrir sónarinn síðast, vinkona mín lenti í því í fyrra!) og séð hvernig hún lítur út! Við erum mega spennt:D

Monday, October 02, 2006

Það rignir....
og rignir....
og rignir....
og Jákup er að keppa í fótbolta. Það verður blautur og þreyttur ungur maður sem kemur í heim í kvöldmat á eftir!

Flesta daga finn ég varla fyrir óléttunni, allt er svo auðvelt og ég full af orku. Svo koma dagar inn á milli, þar sem allt er ómögulegt!!:-S Svoleiðis dag átti ég í gær.... þreytt eftir helgina, svefnlítil, með bjúg á löppunum, með brjóstviða, með ofvirkt barn í mallanum, gat ekki sofnað fyrir pirringi í fótunum og var svo bitin af moskítóflugu í hendina! Klóraði mér svo mikið að það endaði með að Jákup tók hendina og neitaði mér um að klóra mér... Vaknaði svo kl.5.30 í morgun vegna kláða og fór dauðþreytt í skólann.
Á svona dögum vildi ég óska að það væri minna en 9 vikur til stefnu.....