Wednesday, August 27, 2008

Klæi klóri klæi

Teddi krúttipútt á afmæli í dag! Húrra!:)

Hér er allt að færast í venjulegar skorður. Kristina er að venjast tímamismuninum og því að byrja aftur hjá dagmömmunni. Við gætum verið búin að læra meira, en það eru svo margir praktískir hlutir sem þarf að gera fyrstu dagana.
Ég fór í flug á sunnudagsmorgun með Kristinu, og í miðju flugi fór ég að finna fyrir kláða á hægra fótlegg. Ég athugaði það þó ekkert fyrr en við vorum lentar, en þá var ég margbitin á kálfanum eftir eitthvað dýr. Næstu þrjár nætur hafa nánast verið svefnlausar vegna kláða, þrátt fyrir mikla þreytu:( Þetta voru sennilega flær af köttunum hennar mömmu, og ég hef aldrei upplifað annan eins kláða! áts...

Sunday, August 10, 2008

Ein í sveitinni

Ég er búin að ryksuga (eða ryksjúga eins og þau segja hér:), þvo gólf, þvo þvott, vaska upp, lita augabrúnir og fara í bað í dag. Ég er líka búin að horfa á ca 8 Without a trace þætti og tala við dóttur mína í símann í dag. Hún er alsæl með köttunum heima hjá ömmu, og er búin að átta sig á því að hún kemst nær þeim þegar þeir hoppa upp á kommóður og annað ef hún tekur barnaskemilinn með sér þangað og stígur upp á hann. Hún fór í sund með pabba sínum í dag og fór 50 ferðir í rennibrautinni. Ég sakna hennar. Það er leiðinlegt að vera einn með sjálfum sér!

Thursday, August 07, 2008

Ólafsvíkurævintýri að ljúka

Vá hvað sumarið er búið að líða hratt! Síðasta vinnuhelgin mín er framundan og svo skellum við mæðgur okkur til stórborgarinnar að heimsækja ættingja. Það eru búnir að koma margir að heimsækja okkur í sveitina, og við erum í sumarbústaðafílíng alla daga. Við étum á okkur gat af góðum mat og sælgæti og erum að safna í vömb fyrir veturinn:) Allar áætlanir um að fara út að hlaupa daglega og að fara í sund og synda, fóru fyrir bí, af því að það er bara gömul innisundlaug hérna, og ég er búin að vera letihaugur þegar kemur að því fyrra! Við erum hins vegar búin að slá met í nammiáti;)
Jákup og barnið ætla að fara til Rvk á morgun með mömmu, fara í sund og í Kringluna. Jákup ætlar líka að fá að fara í bíó á Batman. Þannig að ég verð kona einsömul um helgina fram á sunnudag. Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi frá Kristinu áður:( Sú er í miklum jafnvægisæfingum þessa dagana, æfir sig að hoppa (er mjög skrautlegt að sjá) og bröltir á pabba sínum. Hún elskar ömmu sína út af lífinu og kyssir hana og knúsar á milli þess sem hún fær að finna fyrir skapsveiflunum hennar. Amma fer út á róló tvisvar á dag, rólar og rennir sér með henni. Svo fara þær í bakaríið, kaupa sér kleinu og svala, og labba um bæinn að tína steina.
Það er fyndið hvað maður er alltaf búinn að setja sig í næsta gír mörgum vikum áður en að honum kemur. Nú er ég tilbúin að byrja aftur í skólanum. Nei, mig langar að lesa nokkar bækur í viðbót:)