Tuesday, October 28, 2008

Ný rör í eyrun

Við Kristina vorum hjá eyrnalækninum. Hún er komin með vökva í bæði eyrun aftur, og honum finnst að við eigum að setja rör aftur. Annars verður þetta langur vetur, og hún heyrir svo illa. 10.nóv verður það. Aldrei friður fyrir svona læknadögum. En að sjálfsögðu vill ég að hún heyri aftur, hún er nógu eftir á með að tala fyrir:(

Monday, October 27, 2008

Ég klippti hana:)

Vá hvað snúllan var glöð að fara til dagmömmunnar í morgun! Hún hljóp í fangið á henni og faðmaði hana. Svo er hún búin að vera eins og ljós í dag síðan hún kom heim og sofnaði um leið og hún lagðist niður. Rosalega getur manni þótt vænt um börnin sín líka:)
Nú er sem sagt friður og ró, en ég get ekki komið mér í gang við lærdóminn. Veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja með hjartasjúkdómana. Frekar mikið efni á einni viku. Og lítill tími til að læra. Er að fara með Kristinu til eyrnalæknis á morgun, og í mæðragrúppu annað kvöld. Á miðvikudaginn er auka kennsla, en við erum vön að geta lært þá daga. Þetta er mjög spennandi efni samt. Illu er best af lokið....:)
Á meðan ég man: Ef einhvern vantar afmælis- eða jólagjafahugmyndir handa Kristinu, þá er hún svo hrifin af Einari Áskeli að okkur vantar fleiri bækur. Hún vill lesa þær öll kvöld, og kallar þær pabba-bækurnar af því að pabbi hans er aukasöguhetjan:) Við eigum "Góða nótt E Á" og "Svei attan Einar Áskell".

Sunday, October 26, 2008

Vetrartími

Þá erum við samviskulega búin að stilla klukkuna klst til baka og kl. er því 8 núna í staðinn fyrir 9. Það hentar sér ágætlega, því Kristina er farin að sofna seinna og sofa til kl.8 á morgnana, og kannski er hægt að halda því þannig að hún sé að vakna kl.7 núna:)
Það er ótrúlegt hvað maður getur orðið reiður út í börnin sín! Kristina er búin að vera lasin alla vikuna, hefur verið lítil og ergileg, og það hefur reynt á okkur báðar. Það er alltaf leiðinlegt að hanga inni svona marga daga í röð og allir sofa illa. En í gær fórum við í mat til foreldra Jákups og komum einum of seint heim, um 20 leytið. Jákup fór út að skemmta sér og ég að koma Kristinu í rúmið. Hún var orðin hitalaus og átti núna að fara að sofa í rúminu sínu. Hún hefur meira að segja gert það alla vikuna án vandræða þrátt fyrir hita og hósta. En það var greinilega ekki málið í gær. Hún grenjaði og kom labbandi fram aftur og aftur og ég leiddi hana inn aftur. Kl. 22.15 var hún enn að, og þolinmæði mín á þrotum! Ég sem ætlaði að læra! Það endaði á því að ég sagði henni að fara bara að leika þegar hún kom fram enn eina ferðina. Svo burstaði ég tennurnar og sagðist sjálf vera farin að sofa og hvort hún ætlaði að koma með. Þá kom hún grenjandi með mér inn í mitt rúm og sofnaði fljótlega. En þetta var ekki mjög pædagogisk. Nú er ég með samviskubit yfir því hvað ég var reið og pirruð.

Friday, October 10, 2008

Þetta krútt...

..og við ætlum að vera áfram í Danmörku þegar náminu lýkur í janúar. Þetta var erfið ákvörðun, en í ljósi undanfarinna atburða á Íslandi sjáum við ekki annað í stöðunni. Við erum með fjárhagslegar skuldbindingar í Danmörku auk þess sem það er lítið spennandi að flytja heim í atvinnuleysi og fjárhagslegt óöryggi. Við erum byrjuð að sækja um vinnu og frestum kandídatsárinu um hálft ár. Þá getum við líka endurmetið stöðuna þegar þar að kemur.
Þá vitið þið það:)
Lífið heldur áfram hérna, en það hefur verið erfitt að einbeita sér að námi síðustu daga. Ég er bara fegin að það er haustfrí í næstu viku, og ég næ að lesa upp það sem ég er búin að trassa í þessari viku. Ég finn að það er komin smá lesþreyta í mig líka. Önnin er ca hálfnuð og það verður gott að þurfa ekki að fara í nýtt fag í næstu viku.
Aðalákvörðunin þessa dagana er, hvar við eigum að vinna eftir 3 mánuði. Óvænt ákvörðun, því við bjuggumst bara við að fara í kandídatspakkann og þurfa ekkert að hugsa fyrr en eftir ár:)

Sunday, October 05, 2008

Ein mynd fyrir mömmu:)