Wednesday, October 06, 2010

Októberblogg


Sjáið þetta krútt! Hún er alveg dásamleg :D

Fyrsti mánuðurinn er búinn í vinnunni og þetta er jafn crazy og ég reiknaði með. Mér finnst alltaf allt vera á hvolfi á heimilinu og ég næ aldrei að fara í ræktina. En vinnan er spennandi og ég held að stelpunum verði ekki mein af því að ég sé farin að vinna, og þá skiptir hitt engu máli :) Við Jákup erum að átta okkur á því hvernig best er að haga vöktunum okkar svo þær skarist ekki á. Við verðum að mestu í fríi um jólin og áramót, og reiknum með að foreldrar hans Jákups komi til okkar.

Íris er byrjuð að ganga meira og meira með stuðningi en þorir engan veginn að sleppa sér enn. Og Kristina kemur með gullmola á hverjum degi sem ég gleymi jafnóðum að skrifa niður. Þær eru alveg yndislegar saman, vilja helst alltaf vera nálægt hvorri annarri og hlæja mikið saman. Það er alveg óborganlegt!

Það er alveg að koma að því að ég byrji á tannréttingunum. Ég byrja á því að fá dregnar tvær tennur úr til þess að mynda pláss fyrir nýrri framtönn. Það verður ekki það skemmtilegasta, en ég verð tannlaus í tæpa viku þangað til teinarnir verða settir á. Ég mun telja niður mánuðina ;)

Mig langar í annan bíl! Ég hjóla alla daga í vinnunna (sem ég hef gott af) en er alltaf svo sveitt og í mikilli tímapressu að ná í stelpurnar.... Þegar ég vinn í lottóinu þá verður það það fyrsta sem við gerum :D

7 Comments:

At 7:34 PM, Anonymous Fjóla Lind said...

Busy busy líf hjá þér og ykkur, en þið rúllið þessu öllu upp;)
Frábært að heyra hvað systurnar sætu eru góðar saman.
Ég öfunda þig ekki að vera að fara í tannréttingar en mikið áttu eftir að vera glöð með þessa ákvörðun þegar þú ert búin.
Bestu kveðjur til ykkar.
xx

 
At 7:52 PM, Blogger Ásta said...

Takk Fjóla! Ég hélt kannski að það væru allir hættir að skoða bloggið :)

Ég vona líka að ég verði ánægð með tannréttingarnar undir lokin og hætti ekki við í miðju kafi vegna sársauka, hehe!

 
At 9:34 PM, Anonymous Fjóla Lind said...

Neibb ég kíki hér annaðslagið;)
Nei nei þú gefst ekkert upp, ímyndaðu þér bara hvað þú endar með glæsilegt bros (ekki að mér finnist neitt að þessu gamla:);)

 
At 5:42 AM, Blogger Unknown said...

Jiminn, sjá þessa krúttubollu! :D

Ég get ekki sagt að tannréttingarnar hljómi spennandi. Hvenær byrjar húllumhæið?

Ertu komin með dagsetningar á heimsókninni. :)

Dóris

 
At 9:55 AM, Blogger Ásta said...

Hún er krúttipútt. :)

Tannréttingar byrja daginn áður en ég reikna með að koma til þín! Ég er ekki búin að bóka miða vegna peningaleysis, en er búin að fá frí úr vinnu 11.-14.nóv. Ég á svo að mæta til tannlæknis 10.nóv að láta draga úr mér 2 tennur. Svo fer ég á þriðjudeginum og fæ teina. Ég mun ekki brosa alla helgina! :S

Ég fæ pening þann 20.okt, bóka miða þá!

 
At 10:36 AM, Anonymous Anonymous said...

Nei sko gaman að sjá bloggfærslu :)

og úff púff ég verð nú bara þreytt við tilhugsunina um allt púslið í lífinu ykkar!! Skil þetta með bílinn, en ef þú kemst aldrei í ræktina, er þá ekki betra að hjóla ;-)

Kveðja Helga Dröfn

 
At 9:30 PM, Blogger Ásta said...

Hehe vissulega! Ég fæ allt nammiátið bætt upp með hjólreiðunum :) En þetta er ekki hægt í miklum snjó. Ég kaupi bíl í fyrstu snjókomunni ;)

 

Post a Comment

<< Home