Tuesday, July 24, 2007

Innkaup og Greenpeace


Kristina Ósk er búin að fá reiðhjólahjálm og stól aftan á hjólið okkar, regnföt og stígvél síðustu daga. Tekur hún sig ekki vel út?:) Við áttuðum okkur á því í fyrradag að þá daga sem annað okkar er að vinna, verður hitt að hjóla með hana til dagmömmunnar (við erum að vinna á suðurjótlandi), og þá urðum við að eiga til regnföt líka! Auk þess krefst dagmamman þess að börnin eigi regnföt. Stígvélin voru þau minnstu sem ég fann, og það er búið að rigna svo mikið í DK síðustu vikur að þetta voru líka einu regnfötin sem ég fann í hennar stærð. Það er ágætt að hún er sætarófa í hverju sem er;-)
Við Dóra og Jákup vorum á röltinu niður göngugötuna í gær og vorum þá stoppuð af Greenpeace starfsmanni sem var að reyna að fá okkur til að styðja málefnið. Við sögðum bara nei en fífluðumst með það eftir á að við hefðum átt að segja henni að við værum Íslendingar og Færeyingur og að við bæði veiddum og borðuðum hvali:) Þegar við Jákup mættum G starfsmanni aftur í dag rauk bara upp úr mér : "vi spiser hvale" hehehe... Ég náði því miður ekki að sjá svipinn á henni, því við vorum komin framhjá henni áður en ég áttaði mig á því hvað ég hafði sagt...
Ég er búin að eyða vibbalega miklum pening í dag!:-S

Sunday, July 22, 2007

Í klóm sómalans

Í gær fór ég loksins út að skokka með nýja mp3 spilarann minn og nýju hlaupaskóna (ég hef verið full af afsökunum, t.d. sparkaði ég litlu tánni í ferðatöskuna og var ófær um hlaup í nokkra daga, svo varð ég lasin, og svo fékk ég 8 moskítóbit á fótlegginn og ákvað að ég væri ófær um að hlaupa á bólgnum fótlegg:) . Leiðin sem ég skokka liggur að einum þriðja hluta á einangruðum stíg sem liggur meðfram lestarteinunum. Ég er ekkert rosalega örugg á þessum stíg, hann liggur nefnilega út í Vollsmose, alræmdasta hverfi Danmerkur, og á honum þeysa reglulega röffaralegir innflytjendur á skellihnöðrum. Það hefur þar að auki verið svolítið um rán á svona hlaupastígum í Danmörku, sérstaklega af ipodum og slíku, og ekki síst hefur það komið fyrir að stelpu hefur verið nauðgað (man amk eftir einu slíku atviki, það gerðist kl.10 að morgni í almenningsgarðinum hérna í Odense, hún var úti að skokka)! Allt þetta rennur í gegnum huga mér í hvert sinn sem ég hleyp þarna, og þá getur maður spurt sig: af hverju hleypurðu þarna? Ástæðan er sú að á þessari 5km leið eru bara ein umferðarljós, sem ég sé sem mikinn kost. Þoli ekki að stoppa reglulega á ljósum. En ef ég fer út á kvöldin, þá hleyp ég aðra leið. Nú, en nóg um það. Í gær var ég bara nýlögð af stað, þegar ég hleyp framhjá unglingsstrák frá Sómalíu sem er að labba á stígnum. Eftir smástund tek ég svo eftir því að það er einhver að hlaupa beint fyrir aftan mig. Ég hugsa með mér að þetta hljóti að vera annar skokkari sem tekur fram úr mér eftir smá stund. Þegar hann svo fer framhjá mér slær hann í rassinn á mér!! Ég snarstoppa, sé að þetta er unglingsstrákurinn sem ég skokkaði framhjá rétt áður og segi strax: hvern andskotann ertu að gera?! Hann horfir undan og skokkar áfram. Ég held áfram að hlaupa. Eftir smá stund fer hann aftur að labba og ég hleyp framhjá. Þá segir hann: Fyrirgefið, þetta endurtekur sig ekki. -skömmustulegur á svip. Þá segi ég honum að hypja sig, ég vilji ekki vera nálægt honum. Loksins í þriðja framhjáhlaupi losna ég við hann og held áfram í mínum eigin heimi.
Þetta var svolítið skondið eitt og sér, en séð í samhengi við allt það sem ég hræðist þarna venjulega fannst mér þetta óþægilegt. Ég efast ekki um að ég hefði getað lamið greyið ef hann hefði reynt eitthvað, hann var svo horaður;-) Jákup spurði mig þegar ég kom heim hvort hann ætti að fara og sjá hvort hann væri þarna ennþá? Ég sagði nei....:-)

Monday, July 16, 2007

Við Dóra sáum Apocalypto í gærkveldi, og sú mynd er sko ekkert léttmeti. Ég var á taugum alla myndina! Og horfði svo aftur á hana með öðru auganu í dag, á meðan Jákup sá hana, og þá var hún ekki síðri. Mæli með henni.
Það á að vera 20 stiga hiti í nótt og við erum strax farin að finna fyrir því. Kristina er svo óróleg, hún er heit og sveitt og sefur illa. Ætli við verðum ekki öll hálf ósofin á morgun. Annars er æðislegt þegar veðrið er gott. Það á að byrja að rigna aftur á næstunni.
Kristina byrjar hjá dagmömmu þann 1.ágúst. Það verður skrítið! Ég hálfkvíði fyrir því að skilja hana eftir, litla barnið mitt, hún er svo lítil ennþá:( En nú verð ég að byrja aftur í skólanum. Við höfum ágúst til að venja hana við dagmömmuna og læra. Jákup er að fara í próf í lok ágúst og ég þarf að skrifa verkefni. Ef ég einhvern tímann kem mér að því:) Mér finnst nefnilega ekki leiðinlegt að lesa skáldsögur þegar ég hef tíma til þess, og er á kafi í nýjum rithöfundi þessa dagana!:-D Og við bíðum spennt eftir Harry Potter bókinni eftir nokkra daga! En annað kvöld er það kvikmyndin. Við Doris ætlum að skreppa í bíó.
Við höfum aðeins verið að túristast upp á síðkastið. Vorum í 2 daga í köben, í tivoli og dýragarðinum og skemmtum okkur konunglega. Í gær skruppum við að skoða Egeskov höll. Hún er rosalega flott, og allur garðurinn í kring. Á fimmtudaginn ætlum við svo að skreppa til Jótlands og fara í Legoland og ljónagarðinn. Gott að Dóra er hérna til að rífa okkur af stað:)

Monday, July 02, 2007

Hún á afmæli í dag....

...hún á afmæli í dag....hún er 27 ára í dag! Hvernig stendur á því að tíminn er svona fljótur að líða?? 30 ára afmælið nálgast óðfluga...
Það verða kökur og vöfflur heima hjá mömmu í dag. Allir þeir sem vilja koma og syrgja þessa öldrun með mér eru velkomnir! Svo erum við nefnilega roknar af landinu aftur á morgun:-)