Thursday, June 30, 2005

Iceland

8 tímar þangað til ég flýg heim til Íslands!
Er að reyna að troða of miklu í ferðatöskuna eins og alltaf, ætla alltaf að vera skipulagðari en síðast en er alltaf jafn sein og óskipulögð að þessu! Það sem er hreint fær að fjúka niður í tösku, restin too bad...

Pabbi er 51 árs í dag! Til hamingju með daginn gamli;)

Sunday, June 26, 2005

Ég er komin í sumarfrí!! Ég var að ljúka tveimur vöktum hjá kallinum sem ég passa, og þarf ekki að fara aftur að vinna fyrr en 7.ágúst!!:) Ljúft....
Ég missti hjartað niðrí buxur í dag á leiðinni heim í leigubílnum úr vinnunni. Það var stór og feitur leigubílstjóri að keyra mig og ég sat frammí þótt að ég nenni eiginlega ekki að tala við þessa kalla. Svo sat ég í mínum draumaheimi, að hugsa út í líkurnar á að kallinn bara keyrði eitthvert afskekkt og myrti mig (weirdo, ég veit) eins og maður er að lesa um hérna í Danmörkinni öðru hverju, nema hvað, hann snarbeygir allt í einu inn á einhvern einbreiðan sveitarveg og brunar áfram eins og hann eigi lífið að leysa (hann var samt búinn að keyra eins og psycko alla leiðina)! Þá fannst mér ég bara að vera að lifa mína verstu martröð, var farin að ímynda mér hvernig ég yrði taugaveiklaður aumingi allt mitt líf ef hann skyldi nú þyrma lífi mínu eftir að vera búinn að nauðga mér og henda mér út í vegkant einhvers staðar, ég var nánast búin að aflýsa miðanum mínum til Íslands með vinunum og segja bless við læknisferilinn. Mér tókst þó að spyrja skálfandi röddu hvort að hann væri viss um að þetta væri vegurinn til Odense og hann fullvissaði mig um það, eða reyndi....:) Eftir 5mín var ég samt farin að kannast við mig, kallinn hefur bara tekið short-cut. Ég komst ss heim á höldnu. Greyið kallinn, örugglega hinn saklausasti, og hefur ekki haft grænan grun um hvað ég var nálægt því að henda mér út úr bílnum á ferð! Hemja ímyndunaraflið Ásta!!

4 dagar í Ísland!

Til hamingju Rúna frænka með læknatitilinn í gær!!

Wednesday, June 22, 2005

2 dagar í sumarfrí!!Ég nenni heldur ekki meir....

Kristinn, Guðrún og Theodór Helgi voru í heimsókn hjá okkur frá laugardegi til þriðjudags og fengu algjört draumaveður! Við löbbuðum mikið um í góða veðrinu og nutum sólarinnar. Það var ekki slæmt að vakna við hljóðin í þessu litla kríli á hverjum morgni! Enda þurfti ég ekki að sofa mikið á meðan þau voru hér:) Svo fóru þau til Svíþjóðar í gær til að heimsækja bróður hennar Guðrúnar og ég skrapp með þeim og heimsótti Önnu Siggu í Lundi. Herborg hitti okkur á lestarstöðinni í Köben og var okkur samferða þangað. Við stöllur röltum saman um Lund, sem er mjög sætur og skemmtilegur bær, og kíktum í búðir og í stjörnuskoðunarturna:) Svo enduðum við heima hjá Önnu og hún eldaði handa okkur góðan mat og köku. Takk fyrir mig!! Á leiðinni heim í gærkveldi leið mér eins og ég væri að kveðja Kristinn og familíu í langan tíma eins og venjulega og var næstum því með kökk í hálsinum yfir að vera að fara frá Lundi af því að þau væru þar, en þurfti þá að minna sjálfa mig á að ég væri að fara til Íslands eftir viku! Og þau koma heim rétt á eftir;) En svona er maður vanur að kveðja fólk alltaf í marga mánuði í senn:( Á lestarstöðinni í Köben hitti ég svo Jákup sem hafði verið að fljúga með vinum sínum og endað í Köben. Við tókum lestina saman heim, en vorum svo óheppin að missa af fyrstu lestinni og þurftum því að bíða eftir þeirri næstu sem fór ekki fyrr en 23.30 og var næstum því tvo tíma á leiðinni heim út af ýmsum seinkunum! Arg!! Það var ansi þreytt og pirruð fröken sem hljóp heim frá lestarstöðinni kl.01.30 í nótt til að geta hent sér í rúmið sitt:-S

8 dagar í Ísland! Allir sem hafa ekkert að gera á daginn og vilja hanga með mér og fara í sund eða bara vilja fá mig í heimsókn rétti upp hönd!:)

Tuesday, June 07, 2005

Svona var dagurinn hjá mér, enn sem komið er..:
Kl. 7: Ég vaknaði við vekjarakukkuna og sneri mér á hina hliðina ákveðin í að njóta þess að sofa í klst í viðbót og skippa æfingu!
Kl. 7.10: Ég vaknaði við það að ég fékk sms frá Kamillu þar sem hún tilkynnti að hún væri heldur ekki að fara að æfa;)
Kl.9-12: Kennsla þar sem ég og tveir bekkjarfélagar mínir fengum náðarsamlegast að framleggja eitt verkefni fyrir bekknum fyrir framan kolklikkaðan prófessor sem er að kenna okkur þessa dagana. Ég var nú ekki mjög stressuð fyrir það verkefni því eins og það kom í ljós, þá var maður ekki fyrr búinn að opna munninn til að ausa út vísdómum sínum um járnskort, en maðurinn tók sjálfur yfirhöndina! Fínt mál;)
Kl.12.15: Æfing, tekið vel á því!
Kl.14.30: Hljóp upp í blóðbankann til að gefa blóð, en var send fram til að borða nestið mitt áður en þau vildu tappa mig!:( Skömmustulegt!
15.30: Komin heim og er að fara að baka pönnsur.....vill einhver?:)

Monday, June 06, 2005

12 dagar þangað til ég sé Theódór Helga! Ég hef ekki séð hann síðan 2.janúar! Jeyyyy!!!!:)

Við erum búin að búa í íbúðinni okkar í 2 ár án þess að geta notað kjallarageymsluna okkar vegna raka og myglu. Ég veit ekki hvað við erum búin að tala oft við eigandann út af þessu máli, og alltaf sagðist hann vera að vinna í því að redda þessu. Svo var að losna íbúð í húsinu og við sömdum við hann um að láta okkur fá geymsluna sem tilheyrði þeirri íbúð! Við vorum að setja allt óþarfa drasl niður í geymslu -loksins!- og ég sem bjóst við miklum mun í íbúðinni, sé varla neinn mun:( Ótrúlegt hvað maður sankar að sér drasli og tímir ekki að henda neinu! En það er þó minna drasl í skápunum. Greyið nýja fólkið samt...er með smá samviskubit út af þeim.....:(

Ég fór að æfa kl. hálf átta í morgun áður en fyrsti tími byrjaði kl.9. Það var hressandi og það var planið að halda því áfram þessa vikuna, en ég finn það strax að ég er farin að búa mér til afsakanir til að fara frekar seinnipartinn svo ég geti sofið klst lengur á morgnana:) Sé til hvenær ég fer að sofa í kvöld:) hehe

Það er rok og leiðindaveður í Odense, en það er allt í lagi fram að helgi, þá er J búinn í stærsta prófinu og þá má alveg koma sumar;)

Wednesday, June 01, 2005

prrrrróf

Nú er aftur orðið skítkalt í DK, enda er það best þegar maður er hvort eð er að læra fyrir próf:)
Hér á heimilinu er allt undirlagt undir bæklunarlækningar og lífeðlisfræði. Nú er ég búin að lesa allt um gigt þannig að ég get kannski loksins sett mig inn í skavanka þessarar biluðu fjöskyldu sem ég tilheyri:) Ég fór í próf úr því í dag og gekk alveg prýðilega. Ég ætla varla að vilja trúa því að það sé enn ein blokkin eftir á þessari önn áður en ég kemst í sumarfrí:( Næst er það blóðblokkin, 3 vikur takk!
J fer í próf á föstudaginn, og ég held að við séum að slá persónulegt met í litlu sjónvarpsglápi um þessar mundir. Sjónvarpið hefur ekki verið kveikt í viku eða svo! Ég ætti kannski að athuga hvort það virki ennþá, bara svona til að vera örugg:S Það sem meira er, við gleymdum að horfa á Lost á mánudaginn! Þá er mikið sagt...

Kona vikunnar er hún Herborg sem varð Arkitekt á mánudaginn! Til lukku!!!! Það kannski kemur sá dagur í lífi mínu að ég geti sagt að ég sé orðin læknir......en hann er ennþá mjög fjarri að mér finnst:-)