Sunday, December 27, 2009

Jólapistill


Stórkostleg mynd af Kristinu Ósk á jóladag, þar sem hún er nývöknuð. Hún sagði meira að segja "smil" á meðan myndin var tekin! :)
Jólin eru búin og ég trúi því varla hvað þetta var fljótt að líða! Kristina var lasin á aðfangadag og var því hálfómöguleg með háan hita. Hún náði þó að leggja sig um miðjan dag með pabba sínum og hresstist heilmikið við það. Hún vaknaði rétt tímalega fyrir matinn og var skellt í jólakjólinn. Við fengum flæskesteg og meðlæti , og möndlugraut í eftirrétt. Kristina var aðdáunarlega róleg yfir þessu öllu saman og þegar jólasveinninn mætti í heimsókn tók hún bara þátt í þeim leik þrátt fyrir að hún sæi það strax að þetta var pabbi hennar :) Þegar komið var að jólagjöfunum var hún líka hin rólegasta og náði bara í einn pakka í einu og beið þolinmóð á meðan pakkinn var opnaður og þakkað var fyrir sig. Hún átti að sjálfsögðu langflestar gjafirnar undir trénu og fékk mikið fallegt. Svo fékk hún að opna margar gjafir fyrir Írisi Lilju líka. Ég var alveg sérstaklega ánægð með bók sem ég valdi í gjöf handa Kristinu Ósk frá Ástu ömmu minni. Þetta er íslensk söngbók, "Ef væri ég söngvari", og með henni fylgir geisladiskur með upptökum af mörgum laganna sungið af barnakór. Ég er búin að sitja mikið með Kristinu og rifja upp hin ýmsu lög sem ég var löngu búin að gleyma. Ég er búin að sakna þess svo að hafa ekki fleiri lög í gagnagrunninum til þess að syngja fyrir dætur mínar, og hér get ég heyrt lagið þegar ég man það ekki, og lesið textann.
Ég fékk aldrei þessu vant 6 bækur, frá dætrum mínum, mömmu og pabba, Dóru systur, Marianna, Tedda og Halldísi. Svo fékk ég mikið af snyrtivörum og föt frá tengdó, ásamt mjög fallegu prjónuðu vesti frá mömmu.
Jóladag vorum við bara hér heima með Annie systur hans Jákups, fórum ekki úr náttfötunum og borðuðum bara léttan kvöldmat þess á milli sem við jöpluðum á konfekti og nammi. Svo spiluðum við spil og höfðum það huggulegt. Á annan í jólum fórum við í skreppitúr til Þýskalands til þess að kaupa gos og kampavín fyrir áramótin og nýttum túrinn til þess að leyfa Kristinu að fá smá útrás í Funpark, sem er barnaleiksvæði. Jákup og Kristina fóru þangað á meðan við Annie og Íris Lilja versluðum. Þau voru samt ekki búin að vera í nema hálftíma þegar Kristina var búin að meiða sig þrisvar af því að hún var í svo sleipum buxum greyið, og voru tilbúin að fara heim. Eftir það fórum við til Marianna í jólamat. Þar borðuðum við á okkur gat af lambalæri og meðlæti, nammm!

Í dag fór Jákup svo að vinna í 10 tíma og við mægðurnar löbbuðum með Annie á lestarstöðina til þess að kveðja hana. Kristina var alveg kolómöguleg og grenjaði alla leiðina fram og tilbaka. Hún er auk þess búin að vera óvenju þversum og óþekk síðustu daga, sem er kannski ekkert óvenjulegt miðað við jól og allt dekrið í kringum það. En kannski eru þetta líka smá sein viðbrögð við því að vera orðin stóra systir og mamma og pabbi þreyttari og óþolinmóðari en venjulega. Þriðja skýringin er svo kannski sú að hún er búin að vera veik einu sinni í viku síðustu 5 vikurnar eða svo...og svo er hún búin að sofa óvenju illa, og þar af leiðandi við öll undanfarið. Alla veganna vona ég bara að þetta lagist bráðum.
Á morgun er Jákup á sólarhrinsgvakt og ég stend vaktina hérna heima á meðan. Leikskólinn er lokaður á milli jóla og nýárs, og síðan förum við til Færeyja til þess að skíra þann 2.janúar og verðum í 5 daga. Þannig að Kristina fer ekki í leikskólann næstu 13 dagana ofan á þessa daga sem við erum búin að vera heima nú þegar. Mér finnst ég ömurleg móðir að vilja óska þess að hún færi í leikskólann þessa daga, en það er bara erfitt að hafa ofan af fyrir 3ja ára barni allan daginn á sama tíma og maður er að sinna svona litlu kríli. Og við erum svo mikið ein hérna úti í rassgati að það er enginn félagsskapurinn heldur. Og þá eru dagarnir langir að líða. Úff púff. Ég tala nú ekki um þegar Kristina er ofan á lag á mótþróaskeiði og grenjar á mig allan daginn. En við verðum að finna okkur eitthvað til dundurs.
Nú er víst kominn háttatími á mömmuna :)

Thursday, December 24, 2009

Gleðileg jól!

Við vöknuðum í morgun með báðar dætur okkar uppí, og kveiktum á sjónvarpinu í svefnherberginu. Við horfðum öll saman á Öskubusku á Disney channel og Kristina lifði sig inní myndina með hoppum og skrækjum! :) Nú er búið að baða 3 af 4 (ég er eftir), búa til möndlugrautinn fyrir kvöldið og Jákup er farinn til Fredericia að sækja Annie í lestina (tekur 1,5 tíma). Já, það hvílir þvílíkur jólaandi yfir öllu hérna, nema hjá hinni mágkonu minni sem nennti ekki að sækja systur sína á lestarstöðina á leiðinni út úr bænum í Odense, af því að þá gæti hún ekki sofið 5 mín lengur! Vá, ég er svo pirruð, en vonandi er þetta púst nóg til þess að ég geti lagt það til hliðar fyrir kvöldið!
Nei....þolihanaekki þolihanaekki þolihanaekki þolihanaekki..... ok búið. ;)

Kristina var komin með hita í gærkveldi og er enn með hita, þannig að hún er voða lítil í sér og aum. En við vonum bara það besta fyrir kvöldið.
Það sætasta sem ég veit er þegar Kristina vaknar á nóttinni til að pissa, og situr stjörf á koppinum á meðan ég bíð til þess að þurrka henni. Svo girðir hún buxurnar og hleypur aftur inn í herbergi í rúmið sitt! :D

Gleðileg jól!!

Tuesday, December 22, 2009


Jólasnjórinn er mættur í Rödekro og feðginin eru búin að vekja snjókarlinn til lífs á bakvið hús!

Í dag gerðum við Kristina konfekt úr 1 kg af marsípani og alls kyns góðgæti.
href="https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEgMiT_MJfaRT6E-9_TIu8Oz4cGoDcGIECA0K3QCpTO7Y9kui9zBBY4jdf99ENOqhpiDx5XrASS4a5Rhr3BN5tXcSMAVJ4SUu5cFXEUdd4Gbi75CqXQ0I3BrcKwqJ4Qvz2zchtDraQ/s1600-h/Desember+2009+004.JPG">
Litla snúllan mín er að verða svo skemmtileg.

Jólaundirbúningurinn er langt kominn. Allar gjafir eru keyptar og jólakortin löngu send af stað. Steikin er í frystinum og matarinnkaup fyrir jóladagana verða gerð á morgun. Í dag gerðum við Kristina konfekt, og ég ryksugaði og skipti á rúmunum, gekk frá þvotti og þvoði ofninn. Maðurinn minn virðist halda að allt gerist af sjálfu sér og honum liggur ekkert á að þrífa fyrir jólin. Ég er örugglega ekki ein um það. "sighhhhhh"
Íris hefur gert lítið annað í dag en að gubba um allt. Gott að ég fór aldrei úr náttfötunum. Kristina var með hita í nótt (held ég, ég nennti ekki að fara á fætur til þess að mæla hana) og var því heima með mér í dag. Hún fór heldur ekki úr náttfötunum fyrr en seinnipartinn.
Er hægt að lesa í gegnum þetta að ég sé að verða hálfgeðveik á að vera heimavinnandi úti á landi?

Monday, December 14, 2009

Damdídarídei



Sæta músín mín! Bíð spennt eftir því að hún fari að grípa í dót :)

Ég er búin að eyða óhemju tíma í tölvunni síðustu daga, fyrst og fremst til þess að reyna að koma Topcom þráðlausa routernum í gang svo við bæði getum eytt tíma okkar í tölvunni í einu (btw ekki gott múv! Eins og er, er annað okkar alltaf tölvulaust og sinnir þá börnunum á meðan, hemmhemm) en án árangurs. Svo er ég búin að hringja í pabba og við saman í gegnum Teamviewer að reyna að komast til botns í þessum andskotans leiðbeiningum sem ekki voru að gera neitt gagn. Mér var sagt um daginn að Topcom væri með 91% gallatíðni, þannig að ég bjóst alveg eins við þessu, en varð að reyna samt sem áður, bara á þrjóskunni! Við pabbi gáfumst upp í gær, eftir mikið maus, og ég hringdi í dag í netfyrirtækið okkar til að heyra hvort þeir gætu ekki selt okkur betra tæki. Þá bjóða þeir upp á þráðlaust net fyrir 29kr á mánuði, maður fær bara annars konar router en þann sem ég er með núna. Gátu þeir ekki sagt þetta fyrr???
Svo er ég að rembast við að setja inn video af snúllunum mínum, teknu á Canon vélina mína. Ég er vön að meðhöndla video úr Fuji vélinni, í Movie maker. En Movie maker les ekki .mov fílana úr canon vélinni. Pabbi var því að láta mig downloada forriti (Formatfactory) sem breytir formatinu á fílnum, en það virkar ekki. Og ég er ekki algjör hálfviti, ég bara veit ekki af hverju lífið er á móti mér þessa dagana!
Ég reyndi sko líka að baka kleinur í gær, sem gjörsamlega misheppnuðust og heimatilbúna pizzan á laugardaginn varð ekkert spes.

Jæja, en það góða er að ég er byrjuð að æfa eins og monster á Nintendo Wii active og það er að gera góða hluti! Er með harðsperrur í öllum líkamanum -me like! Og ég er bara hress þrátt fyrir mótlætið. Svona hefur líkamsræktin góð áhrif. Ég meira að segja horfði og handfjatlaði eitt stykki súkkulaði hérna áðan og setti það svo aftur ofan í skúffu! Járnagi (alla veganna þennan klukkutímann hehehe;)

Wednesday, December 09, 2009

Maníodepressív?

Jákup sakaði mig í gær um að vera það, vegna þess að ég er gráti nær af frústrasjón annan daginn og hoppandi glöð og hamingjusöm hinn daginn... Er það ekki skilgreiningin á heimavinnandi mæðrum með tvö lítil börn?? Nei ég er kannski að misskilja eitthvað :D Sumir dagar eru bara ótrúlega lýjandi, eins og öll síðasta vika, þegar Kristina var með flensu og ég var innilokuð með þær tvær í 10 daga. Ég var enn að jafna mig á þessari viku í gær og grét krókódílatárum yfir því að eiga mér ekkert líf. Í dag sóttum við mæðgur Jákup í vinnuna eftir næturvakt, og fórum svo með Kristinu á leikskólann. Jákup fór svo heim að passa Írisi og ég fór ALEIN í endurhæfinguna eftir fæðingu (leikfimi með grindarbotnsáherslum). Ég kom endurnærð heim og ætlaði að éta barnið mitt eftir 2ja tíma fjarveru! :) Ég er líka að verða búin að jólakortaskrif og allar jólagjafir að verða komnar í hús, og ofan á það byrjuð á spennandi bók um Kay Scarpetta. Þá er deginum bjargað!

Ég er að bíða eftir því að Jákup vakni af lúrnum sínum, og ætla þá að draga fjölskylduna með mér í bíltúr til Tönder að skoða jólahúsið þar og miðbæinn. Hér þarf mikið til að halda Kristinu vakandi fram að kvöldmat, svo hún geti svo farið að sofa snemma. Hún er svo þreytt þegar hún kemur úr leikskólanum eftir að hún hætti að sofa á daginn, en þegar hún svaf enn, sofnaði hún ekki fyrr en kl.22.30 á kvöldin, sem var að gera okkur brjáluð. Þannig að það er allt að vinna ef hún getur bara vakað fram að kvöldmat og farið svo beint að sofa. En hún er voða þreytt þessa dagana eftir að hafa verið lasin í heila viku, og í fyrradag sofnaði hún í fanginu á mér á meðan við vorum að púsla kl.17! Í gær sofnaði hún í sófanum í hálftíma, og sofnaði svo ekki fyrr en kl.22.15 um kvöldið. Það er alveg agalegt að hún skuli vera svona þreytt, en ég er að vona að þetta sé tímabundið ástand, og vill af eigingjörnum ástæðum frekar að hún sofni kl.18.30 en kl.22.30! Ég vill bara fá smá tíma fyrir sjálfa mig á kvöldin.

Af því að ég er ekki búin að baka nóg (NOT) og af því að við höfum gott af meira áti (NOT) er ég að hugsa um að búa til heimatilbúinn ís með M&M (ef það verður eitthvað eftir af pokanum, hann er að hverfa ofan í mig hérna) og kleinur! Megrunin bíður betri tíma...

Tuesday, December 01, 2009

Jóla- og afmælisundirbúningur


Sem framhald af síðustu færslu er ég núna búin að redda augabrúnunum og fara í klippingu og strípur ;) Ég er líka búin að fara í H&M og kaupa nokkrar flíkur fyrir afmæli og jól, og átti þar mjög góða upplifun! Ég var með Írisi með mér, og hún vaknaði að sjálfsögðu í búðinni og vildi vera á handleggnum allan tímann. Ég gekk því um með hana á öðrum handleggnum og barnavagninn í hinni og greip nokkrar flíkur. Eftir smá bið í mátunarklefa, með Írisi óánægða, kom loksins að mér og bunkanum mínum. Ég byrjaði á að gefa Írisi inni í mátunarklefanum og kom henni svo fyrir á peysunni minni á gólfinu. Svo mátaði ég hverja flík á fætur annarri, og hér kemur þessi stórmerkilegi hluti: Allt passaði! hehe Og mér leið aldrei þessu vant ekki eins og flóðhesti inni í mátunarklefanum :D Lýsingin þarna hefur verið vel heppnuð! ;) Kaup dagsins urðu einar buxur, einar leggings, tveir bolir og einn kjóll. Þá er eitthvað að velja úr fyrir jólin!
Í gærkveldi sat ég sveitt við að festa hringi á jóladagatalið hennar Kristinu, og pakka inn gjöfum. Ég reyndi að virkja kallinn í að setja gjafaband á pakkana, en þvílíkt og annað eins hroðvirki hef ég ekki séð...ég sé um að pakka inn jólagjöfunum, það er á hreinu! Ég settist við saumavélina með dagatalið til þess að sauma kantana, og fékk velþekktan huggufílíng á meðan ég saumaði. Ég verð að fara að finna mér eitthvað saumaverkefni til þess að nýta vélina mína, ég elska að nota hana :) Það vantar gardínur í svefnherbergið....(yfir rimlagardínurnar altsaa....við erum ekki galin:) Ég náði þó ekki að þvo og pressa dagatalið, þannig að það er svolítið beyglað. Það verður klárað alveg eftir jól.
Ég er búin að baka 3 sortir og er óðum að skipuleggja afmælisbakstur fyrir helgina, þegar við ætlum að halda upp á 3 ára afmælið hennar Kristinu. Og jólagjafakaupin eru aaaaalveg að verða búin. Alveg er það ótrúlegt hvað þetta dregst á langinn, og samt er ég búin að vera að lengi! Núna vantar mágkonurnar, því þar verður allt að fara eftir óskalista, og Jákup. Ég á líka eftir að kaupa dúkkuvagn fyrir Kristinu, en veit hvar ég fæ hann. Svo ætti þetta að vera komið fínt.
Kristina er lasin, búin að vera með hita á 3ja dag og er núna aftur sofnuð með bullandi hita greyið. Hún er samt fín yfir daginn, og byrjar fyrst að vera sloj seinnipartinn. Hún vaknaði kl.4 í nótt og bað um vatn, þar sem hún lá á milli okkar í rúminu. Vatnsbrúsinn hennar var Jákups megin við rúmið og ég bað hann því um að rétta henni vatnið. í fyrstu atrennu sagði hann "Mhhhmhm...zzzzzz". Í annarri atrennu: "Ja....zzzzzzz" og í þriðju: "Nej Kristina, du kan få den når du kommer hjem" ! Hehehe! Þá fékk hann olnboga í hausinn og var vakinn nógu vel til þess að rétta okkur brúsann. Nema að það var ekki nóg, prinsessan þóttist vera svöng og vildi fá brauð með mysingi. Ég fór með hana fram í eldhús og smurði fyrir hana, en þá sat skottan bara á eldhúsborðinu með brauðið sitt í hendinni og horfði á mig með stórum augum og með skorpur á vörunum af þurrki og snerti það ekki. Við fórum þá og settumst saman inni í herberginu hennar, ég mældi hitann hennar og gaf henni panódíl, og svo fór hún að narta í brauðið sitt. Við fórum svo aftur upp í og sváfum til 9 (jaa, eða sumir, við Íris vorum að fóðra hana inn á milli). Þannig að Kristina er búin að vera heima með okkur Írisi í 2 daga. Við fórum samt í smá rúnt niður í bæ í dag til þess að sjá jólasveininn. Það var gott að komast aðeins út!