Jákup er farinn til Færeyja og ég er ein heima.
Þess vegna var ég úti að hlaupa, er búin að gera mig sæta og held partý í kvöld!!! Muhahahaha!! Nei djók, ég er ekki svo vond. Það er halloween partý í kvöld í bekknum og við ætlum að hittast nokkrar stelpur heima hjá mér og panta indverskan mat og gera okkur scary á undan;)
Skrítið að vera ein heima. Ég horfði á 4 þætti af House í dag í staðinn fyrir að læra... Kristinn hringdi líka í mig í morgun til að leyfa mér að heyra Tedda urra eins og ljón. En hann var eitthvað feiminn við símann og gretti sig bara í staðinn!;-) Dúllurass.
Ég verð þó bara ein í viku, er svo sjálf að fara í kuldann til Færeyja! Hvernig á ég að pakka fyrir 1,5 mánuð? Þegar ég þarf að hafa tréklossa og lyfjabækur með mér? Og hlý föt sem hafa alls ekki verið notuð hérna ennþá.... Hitastigið er að skríða niður fyrir 10 gráður þessa dagana en er annars búið að vera hlýtt hingað til. Ekki slæmt það! En ég hlakka bara til. Og sérstaklega til að koma heim eftir klinikina!