Sund í DK
Ég hef, þessi 8 ár sem ég hef búið í Danmörku, aldrei einu sinni íhugað það að fara í sundhöllina í bænum. Þegar maður kemur frá svona lúxuslaugum eins og á Íslandi, er samanburðurinn hreinlega sorglegur. En ég er byrjuð í sjúkraþjálfun vegna bakverkja og sjúkraþjálfarinn er búin að snúa upp á handlegginn á mér og neyða mig til þess að fara að hreyfa mig og hugsa betur um sjálfa mig. Þannig að ég er búin að fara tvisvar að synda! Í fyrra skiptið fórum við fjölskyldan í sundlaug í Nyborg með barnalaug þar sem feðginin kepptust um að fara í rennibrautina á meðan ég synti. En í dag fór ég beint úr vinnunni, niður í bæ, eingöngu til þess að synda. Og viti menn, það var bara ferlega nice! :) Ég synti reyndar bara 4 ferðir skriðsund (þvílíkt erfiði!) og svo 20 á bringunni, en þetta var mjög gott. Notalegt að finna ekki fyrir þyngslunum sem annars eru að bætast á mig ;) Nú verður unnið að því að bæta skriðsundstæknina.
Á morgun á ég frí í fyrsta sinn í 10 daga. Og við familían ætlum að skreppa í Legoland, örugglega ásamt helmingnum af dönum. Það er nefnilega frídagur og veðrið alveg ágætt. En einmitt vegna allra þessara vinnudaga, helmingurinn af þeim til kl.18, hef ég nánast ekkert annað gert en að koma heim, elda mat og fara að sofa á sama tíma og Kristina. Hér bíður mín fjall af þvotti, myndir sem á að setja á barnaland, kort sem þarf að skrifa, og ráðningarsamningar sem þarf að senda undirskrifaða til Aabenraa. Jibbíkóla! Svo er vika eftir af vinnu, og þá er komið að Íslandsferð! :) Við erum spennt! Ég er búin að segja Kristinu að við séum að fara til Íslands, þannig að í hvert sinn sem ég segi: "Veistu hvað við ætlum að gera á morgun?" (t.d. Legoland á morgun), þá segir Kristina "Fara í sund með Tedda"! Þá vitum við hvað er efst á lista við komuna til landsins!
Við erum að slást við liðið í Aabenraa um að fá íbúð í ágúst. Eða kannski ekki svo gróft, við erum búin að athuga stöðuna, og eins og er geta þau fyrst boðið okkur íbúð um miðjan sept. Þá verður Jákup að keyra fyrstu tvær vikurnar héðan, og ég kasólétt að vera heima með Kristinu. Ekki nenni ég að hjóla með hana til dagmömmu komin 39-40 vikur á leið. Mér finnst það nógu strembið núna (það er brekka alla leiðina þangað sko...) Og flytja svo alveg í kringum fæðinguna... ætli ég fari ekki bara af stað í flutningabílnum! hehe
