Monday, June 28, 2010

Going thirty!


Elska þessa mynd! Íris er svo stolt :)

Þrítugsafmælið nálgast óðum, bara 4 dagar í stóra daginn! Jæks... Er það kannski ástæðan fyrir hreyfingarflippinu sem ég er að ganga í gegnum?? Er ég að reyna að snúa klukkunni við ómeðvitað? :) Ég er byrjuð að æfa fyrir hálfmarathon, sem við Mette ætlum að hlaupa annað hvort 4.sept í Tönder, eða 19.sept í Odense. Á laugardaginn hljóp ég í fyrsta sinn 10,2 km, en það lengsta sem ég hafði annars hlaupið í ár voru 9 km. Þetta gekk eins og í sögu, og ég svitnaði varla. Ég held að ég verði að fara að drekka meira vatn (og minna pepsi max kannski? humhum!), það er ekki eðlilegt hvað ég svitna lítið. Í gær skellti ég mér í spinning í súpertíma, náði maxpúls 92% af hámarki og meðalpúls var 80% af hámarki. Svitnaði ágætlega þar ;)
Tók svo fram málbandið í gær og mældi 4 staði (mitti, mjaðmir og bæði læri) og er búin að missa 20cm síðan í nóvember :D Í dag eru það 6 eða 7 km, en það verður að bíða þangað til það fer að kólna aðeins, því það er 25 stiga hiti!
Það er spáð góðu veðri alla vikuna og það á að toppa á laugardaginn, þegar við Jákup höldum veislu :) Við hlökkum mikið til! En það er nóg að gera þangað til....ég verð að fara að skipuleggja innkaup fyrir matinn. Við skruppum til Þýskalands í gær að versla gos og bjór fyrir afmælið og fylltum bílinn! :)

Íris er byrjuð hjá dagmömmu og það gengur betur og betur með hverjum deginum. Ég hlakka samt til lok júlí, því þá verðum við mæðgur í fríi í 2 vikur saman, allar þrjár. Þá er lokað í leikskólanum og hjá dagmömmunni og ég sakna þess að hafa þær hjá mér allan daginn. Þá verðum við heima í viku, og svo skreppum við til Íslands í 10 daga. Ég neita því þó ekki, að það er búið að vera ágætt að hafa morgnana til að leggja sig aðeins og hlaða batteríin. En ég sakna Írisar þó hún sé bara hjá dagmömmunni í 2-3 tíma enn sem komið er, og er svo hrædd um að missa af svo miklu. En þetta er óhjákvæmilegt. Ég verð bráðum að fara að vinna, og ég vill frekar gera þetta svona hægt og rólega, og leyfa henni að aðlagast á mörgum vikum, en að þurfa að henda henni í pössun frá 8-16 þegar ég byrja að vinna eftir stutta aðlögun. Vikuna áður en ég byrja að vinna erum við að fara í sumarbústað, þannig að þá verður líka gott að hún er búin að venjast, og verður ekki alveg kexrugluð.

Úff...ég trúi því ekki að fæðingarorlofið sé að verða búið :( Ég er að hugsa um að eignast 10 börn svo ég geti fengið sem mestan tíma heima ;) Ég má eiginlega ekki vera að því að fara að vinna! Ég er að prjóna, sauma, lesa bækur, hlaupa, púsla, horfa á fullt af kvikmyndum og þáttum sem við eigum eftir að sjá, framkalla myndir og setja í albúm og ramma, elda, þrífa, leika og knúsast í stelpunum. Full vinna skal ég ykkur segja ;)

Friday, June 04, 2010

Rødekro løbet

alt=""id="BLOGGER_PHOTO_ID_5479023085390595346" />





Í dag fórum við fjölskyldan öll saman og tókum þátt í Rödekro hlaupinu. Kristina hlóp 1.3 km, en við hjónin 6km. Krsitina var rosalega dugleg, og hljóp nánast alla leiðina, með smá göngupásum. Við jákup tókum með henni einn hring hvort, en þau áttu að hlaupa 2 stutta hringi. Hún var ægilega stolt og ánægð með medalíuna sína!
Það var frekar heitt í dag og logn, og allt of heitt til að hlaupa, en við höfðum þetta af. Ósk amma og íris voru með, og tóku myndir af okkur :)