Monday, May 31, 2004

Ég veit að þetta var mjög dönsk setning....hér kemur leidrétting: Ég fékk þá tilfinningu ad ég væri med grjót í maganum.... Úfff, nú getur fjölskyldan mín andað léttar:)

Stress!

Ég var búin ad lofa sjálfri mér ad ég yrdi ekki stressud fyrir þetta próf, en viti menn! Ég er stressud!!!!!!!!!! Shit. Ég var steinsofandi í morgun og rétt rumskaði út af óþæginlegri stellingu, en um leið og ég var nógu vöknuð til að muna eftir prófinu á fimmtudaginn fékk ég tilfinninguna af því að vera med grjót í maganum og ég varð að rjúka á fætur, löngu áður en vekjaraklukkan hrindi. Damn. Ég hata þessa tilfinningu! Og mig er farið að dreyma að ég sé í prófinu og að ég geti ekki svarað neinu....arggggg!

Sunday, May 30, 2004

Röfl

Það er loksins komin smá sól! Reyndar er mér búið að vera eiginlega alveg sama á meðan ég er að lesa fyrir próf, en það er samt nice að geta skroppið í smá sólbað í pásunum. Við Mette lásum í dag til ad verda hálf tólf, og ég ætti auðvitað að vera farin ad sofa fyrir löngu, en freistaðist af söngnum sem ég heyrði uppi á 3.hæð hjá þeim Katrínu og Viðari. Þannig að ég skrapp aðeins upp í smá hvítvín hjá þeim. Gunni og Viðar voru að spila á gítar og sungu hástöfum, það heyrðist alla leið út á götu.
Ég hef greinilega ekkert merkilegt að segja, ætli ég fari ekki að sofa í hausinn á mér! Góða nótt!

Thursday, May 27, 2004

Sumar í Danmørku

Djøf......auli get ég verid!! Nú er ég búin ad eyda sídustu 20 mínútunum í ad reyna ad muna hvad ég skýrdi helv....bloggid! Eda thad er ad segja hvada notendanafn ég valdi mér.. Thetta var ekki sérlega vel úthugsad greinilega. Ég var greinilega ekki med allan hugann vid thetta í gær. En ég komst inn! Jibbí!
Í dag er annars thad í fréttum ad thad er loksins komid almennilegt sumarvedur! Ég hugsa meira ad segja ad ég eydi einhverjum hluta dags á morgun í lestur utandyra. Jei! Og ég keypti mér sólarvørn í dag, faktor 15, í ljósi thess ad thad er mér enn ferskt í minni hversu illa ég brann í próflestrinum í fyrra. Thá brann ég svo illilega á øxlunum ad ég gat hvorki sofid á bakinu né hlidunum í 2 nætur, og vard thví ad thróa med mér listina ad sofa á maganum -sem mér hefur alltaf verid ákaflega illa vid. Ekki hjálpadi sú stadreynd ad sama dag var ég bitin af moskítóflugu, bólgnadi svo upp á økklanum ad ég gat ekki verid í neinum skóm, og fékk hita og slappleika í kjølfarid. En mér hefur thó takist ad venja mig á ad sofa á maganum í nokkrar mínútur á hverri nóttu sídan, en thó ekki meira en thad. Thad var thó hægt ad hugga sig vid thad ad prófin gengu eins og í søgu thrátt fyrir ófarirnar. Ok ok, ætli ég nái ekki í íslenska stafrófid....
Þetta var betra. En þótt ad stafrófið sé komið á sinn stað, lofa ég engu varðandi íslenskuna. Hún á það til að líða fyrir dönskuhjal mitt allan daginn vid hann Jakob og lesfélaga minn hana Mette.

Ég brenndi poppid mitt, verð að poppa aftur!

Wednesday, May 26, 2004

Jæja!!

Er ekki kominn tími til ad ég bætist í hóp alræmdra bloggara og láti heyra í mér svona ødru hvoru? Fjølskyldan og vinir halda sennilega ad ég sé daud! Enda ekki hin duglegasta vid ad skrifa mail og annad... En nú er komid ad thví! Sjáum svo til hvort mér takist ad halda mér vid efnid....hehehe:)
En thetta verdur ekki lengra í thetta skiptid....tharf ad elda kvøldmat og halda áfram ad lesa fyrir hid hrædilega próf 3.júní í lífedlisfrædi (sjáidi bara hvad próflesturinn er spennandi, hér er ég ad búa til bloggsídu!) haha