Friday, June 27, 2008

Sumarfrí

Síðasta prófið var í dag og gekk mjög vel. Það er búið að vera stíf dagskrá í dag vegna útskriftar allra vinanna, og ekki tími til að slaka á heima. Hvað þá heldur að taka til eða þrífa fyrir sumarið! Við leggjum af stað til Köben í fyrramálið og þaðan til Parísar, og svo er Íslandsferð strax á eftir, og ég er ekki byrjuð að pakka. Ohmygod. Það er svo notalegt að geta gengið vel frá eftir sig og tekið til áður en maður leggur af stað, en það er ekki í boði, því miður. Við verðum heppin ef við munum eftir öllu!:S
Það var örlítið skrítið að sjá alla vinina klára í dag, og vera ekki á meðal þeirra. En næst er komið að okkur! Marga af þessum bekkjarfélögum eigum við aldrei eftir að sjá aftur. Fólk dreifist um allt, Svíþjóð, Noreg, Færeyjar, Brasilíu, Sjálland, Jótland. Undarlegt eftir 6 og hálfs árs samveru upp á næstum hvern dag!

6 Comments:

At 12:08 PM, Anonymous Anonymous said...

Góða skemmtun öll sömul! Við hlökkum til að sjá ykkur eftir nokkra daga :)

 
At 2:31 AM, Blogger herborg said...

Góða ferð í fríið:) - hlakka til að hitta ykkur öll sem fyrst:)

 
At 1:29 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá tímamót eiga sér stað!

Góða ferð og hafið það gott, til hamingju með daginn á morgun og sjáumst vonandi eitthvað í sumar :)

Kveðja Helga Dröfn

 
At 1:47 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með afmælið í dag frænka :) Vonandi var dagurinn góður. Það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt, þú ert algjör ofurkona :)
Vonandi fæ ég að hitta þig bráðlega.

 
At 12:38 AM, Anonymous Anonymous said...

Við bíðum spennt eftir myndum og ferðasögu :)

Vonandi verður prinsessan líka fljót að jafna sig svo hún verði hress í ferðinni hingað.

 
At 5:53 PM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir kveðjurnar!
Við erum komin heim heil á höldu, með lasna dömu. En hún er að hressast og við förum til Íslands á morgun. Ég hef ekki tíma til að blogga um ferðina, en það eru myndir á barnalandi:)
Sjáumst vonandi öll í sumar!

 

Post a Comment

<< Home