Thursday, June 12, 2008

Ásta Nanny

Yes, er byrjuð aftur í skólanum eftir 3ja vikna pásu. Það er ljúft, alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Sit hérna sveitt að læra, en ætti að vera farin að sofa. Er að passa lítinn gaur fyrir vinafólk sem var í embættisprófi í dag og eru því úti að fagna. Hann vaknar kl.5 á morgnana og ég ætti því að demba mér í rúmið til þess að vera úthvíld eftir nokkra tíma, en börnin grenja bara til skiptis, þannig að það tekur því varla:S Ég held að Kristina sé óörugg við það að hann sé í pössun, hún er nefnilega búin að sofa eins og engill upp á síðkastið. Hún er reyndar með eyrnabólgu í báðum, svo það gæti líka verið það sem er að trufla hana.
Ég verð annars alveg fjúkandi brjáluð þegar ég sit hérna að læra um nýrnasjúkdóma, hvernig læknirinn bar sig að um daginn þegar Kristina fékk þvagfærasýkingu! Hún var búin að vera meira eða minna veik í 6 vikur og var með næstum 40 stiga hita, hékk á okkur eins og slytti og vildi ekkert ganga eða leika sér. Þvagprufan sýndi sýkingu, en það var föstudagur og hann gat ekki sent þvagið í ræktun. Þannig að hann sendi okkur heim og bað mig um að koma aftur á mánudeginum með þvagprufu! Ég gæti lamið mig fyrir að fara eftir þessu. Ég hringdi svo í vaktlækninn daginn eftir og fékk sýklalyf af því að hún var þá hætt að borða líka. Nú er ég að lesa að börn með svona mikinn hita og merki um þvagfærasýkingu eiga að leggjast inn og fá sýklalyf i æð. Og það er hætta á að það myndist ör á nýrunum ef meðferð seinkar um meira en 2 daga, sem getur háð þeim seinna í lífinu. Ég vissi þetta meira að segja nokkurn veginn, en var ekki með þetta alveg á hreinu og treysti honum því bara fyrir ákvörðuninni. Það er engin lygi að maður fær oft verri meðhöndlun af því að maður er læknanemi eða læknir. Þá er manni nefnilega t.d. frekar treyst til þess að fylgjast með einkennunum sjálfur osfrv. Ég lem hann næst þegar ég sé hann.
Finnst einhverjum ég oft passa annarra manna börn??:)

4 Comments:

At 8:44 PM, Anonymous Anonymous said...

ég kommentaði einmitt á færslu hjá þér með þvagfærasýkinguna, skyldi ekki af hverju ekki var meira gert fyrir kristinu, okkur var einmitt sagt þetta að það sé ekki eðlilegt að börn séu að fá þvagfærasýkingu og sérstaklega þegar mikill hiti osfrv þá þarf að leggja inn til frekari rannsókna. Endilega lemmdu viti í þennan lækni! kveðja Heiðdís

 
At 8:58 PM, Blogger Ásta said...

Ég var líka nokkuð viss um að það væri venjan að leggja börn inn, en átti eftir að lesa þetta sjálf, og fannst því erfitt að rökræða við hann:(

 
At 12:20 PM, Anonymous Anonymous said...

Miðað við ótrúlega margar sögur héðan af klakanum þá virðist þessi framkoma ekki einskorðast við læknanema.... því miður! Alltof margir eru að lenda í að þeim er bara sagt að fara heim og þetta jafni sig (alveg sama hvað vandamálið er og hvort um barn eða manneskjuna sjálfa er að ræða!)

Ég skora á þig eftir nám að verða ekki svona "þreytt" á vinnunni þinni að þú nennir ekki að sinna henni :)
Maður á alltaf að skoða hvert tilfelli sem einstakt. Finnst mér! Skoða alla möguleika.

En sem betur fer heyrir maður af hinum duglegu líka - en hitt er of algengt.

Kv. kuklarinn (HD) :)

 
At 8:56 PM, Blogger Ásta said...

Ég mun gera mitt besta:)

 

Post a Comment

<< Home