Vörn og Dýr
Ég varði verkefnið mitt í gær, og það gekk alveg ágætlega. Ég fékk 10, sem er næsthæsta einkunnin hérna eftir að einkunnakerfinu var breytt. Ég verðskuldaði ekki hærra, enda grilluðu þeir mig í vörninni og spurðu mig um svo margt sem ég hafði ekkert velt fyrir mér. Ég bjargaði mér samt alveg út úr því og þetta reddaðist allt saman:)
Í dag fór ég og hélt fyrirlestur á háls- nef- og eyrnadeildinni um verkefnið mitt og yfirlæknarnir héldu ekki vatni yfir verkefninu! Þeir voru sem sagt mjög hrifnir, og hvöttu mig óspart til að birta verkefnið í erlendu tímariti frekar en dönsku, eins og við leiðbeinandinn höfðum hugsað okkur. Það myndi þá þýða að ég þyrfti að liggja yfir verkefninu í sumar og þýða það á ensku og bæta ýmislegt.... Sjáum til;)
Ein af Kristinu í fyrradag, hún setti sjálf á sig hjálminn og var tilbúin í ferðalag:)
Kristina og Annabell í ljónagarðinum
Kristina og Jákup að skoða fílana
Við fjölskyldan fórum strax eftir vörnina í gær í ljónagarðinn á Jótlandi og tókum Annie faster með okkur. Það var geggjað veður og dagurinn var æðislegur. Kristina var eins og ljós í bílnum, sem veitir á gott fyrir Parísarferðina okkar eftir rúmar 3 vikur!

7 Comments:
Til lukku með flotta einkunn!:) Geggjað að yfirlæknarnir á deildinni skyldu vera svona hrifnir.
Yndisleg mynd af Kristinu með hjálminn og vegabréfið, tilbúin að leggja land undir fót;)
Takk fyrir það!:)
Já hún heldur greinilega að við ætlum að hjóla til Parísar! Hehe
Glæsó - til hamingju með frábæran árangur - miðað við allt sem búið er að ganga á máttu vera ánægð! hihihi...
Helga Dröfn
Takk takk:)
Til hamingju Ásta, frábær einkunn !
Takk fyrir:)
innilega til lukku!!!:) rosalega eru klár:)
Post a Comment
<< Home