
Kristina er á einhverju fataskeiði, henni finnst æðislegt að reyna að klæða sig í allt mögulegt. Oft er hún þar af leiðandi í tvennum buxum og náttfötum um miðjan dag osfrv. En nú slær öllu við. Hún var að róta í óhreina tauinu í dag og kom fram alsæl með nærbuxur af móður sinni um hálsinn. Ég reyndi að fjarlægja þær og setja aftur í bunkann, en þær voru sóttar aftur jafnharðan. Þá tók ég á það ráð að skipta og gefa henni hreinar nærur til að bera sem hálsfesti:D
Rétt fyrir kvöldmat fann hún svo skítugar boxer nærbuxur af pabba sínum, sem var að enda við að keppa í fótbolta. Þær varð hún að reyna líka. Hann reyndi sama ráð og ég fyrr í dag, með mun lakari árangri. Hún er þó búin að gleyma því núna:-)
6 Comments:
Ji en gaman hvað þú ert dugleg að blogga:)
ótrúlegt hvað þessi börn taka uppá! Kristina er líka greinilega mikill og skemmtilegur karakter;)
Karen finnst æðislegt þegar hún kemst í óhreinatauið í friði, þá veltist hún um í þvottinum. Mér finnst það sko ekki sniðugt að veltast um með skítugar nærbuxur og sveitta sokka!!
Mér fannst thetta heldur ekki mjøg snidugt!:)
Ömmu finnst hún bara yndislegust !!
jömmí!!! heheeh
Ég hef greinilega ekki kíkt inn hjá þér lengi.. amk hef ég nóg að lesa - takk fyrir það! :)
Ef þessi blessuðu börn vissu hvað fælist í óhreinum þvotti hihihihi...
Flott stelpa sem veit hvað hún vill
Fer ekki að styttast í Frakklandsför?
Helga Dröfn
Jú, minna en tvær vikur!:)
En eitt stykki próf fyrst, þannig að skipulagning er ekki á háu stigi enn sem komið er.
Post a Comment
<< Home