Tuesday, June 17, 2008

Doctor doctor

Ég fór til læknis í dag til að biðja um tilvísun í nefaðgerð. Ég er með svo skakkt miðnes (takk mamma) að ég anda nánast eingöngu í gegnum aðra nösina. Ef ég kvefast, þá sef ég varla því ég verð að geta andað í gegnum nefið. Ég vill að ákveðinn yfirlæknir á háls-nef- og eyrnadeild geri aðgerðina því hún er best. Ætli ég verði ekki kölluð inn árið 2012 í aðgerð. Verst að það þarf að gerast áður en ég flyt til Íslands, því þá þarf ég að borga fyrir það! hehe
Læknirinn minn er með ungan lækni hjá sér sem er í sérnámi til heimilislæknis. Það var hún sem tók á móti mér í dag. Þegar ég kom inn, spurði hún hvað hún gæti gert fyrir mig og afgreiddi það. Næstu 10 mínúturnar fóru í að ræða það hvernig hún gæti komist til Íslands að vinna í nokkra mánuði í afleysingar. Hvort ég væri með einhver sambönd osfrv. Ég fékk e-mail adressuna hennar og lofaði að senda henni adressuna hjá lækninum sem ég er að fara að leysa af í sumar.
Hvor okkar ætli hafi fengið meira út úr þessum tíma?:)

2 Comments:

At 12:26 AM, Anonymous Anonymous said...

HEHEHE gat skeð!

Ég fór í krabbaskoðun í Svíþjóð þegar við vorum þar. Var í 66°N flíspeysunni minni sem er ekki frásögum færandi nema einmitt hjúkkan talaði einmitt um að hún hefði verið á Íslandi og hvað það væri frábært land og að hún hefði keypt sér 66°N flíspeysu og eitthvað la la la.. rosa fjör. HAHAHAA en ég þurfti svo sem ekki að ræða neitt við hana mér til fróðleiks! HEHEHe en ég skil aðstæðurnar!

Helga Dröfn

 
At 7:13 PM, Blogger Ásta said...

Ég lendi svo oft í þessu:) Það þarf alltaf að ræða ísland fram og aftur, og ég útlendingurinn sjálfur, get oft ekki svarað öllum spurningum fullnægjandi:(

 

Post a Comment

<< Home