Thursday, April 03, 2008

Pestarbæli

Við mægðurnar erum búnar að vera saman heima í dag, en feðginin voru heima í gær. Já, Kristina er lasin enn einu sinni. Hún er búin að vera veik með 39 stiga hita í nokkra daga fjórum sinnum á fimm vikum. Allveg klassískt þegar maður á að vera í fullri mætingu einhvers staðar. Ég útskýrði stöðuna á barnadeildinni í gær, og fékk að klára í gær, svo að Jákup gæti mætt í dag og á morgun. Hann er nefnilega bara í 2 vikur á geðdeildinni og átti eftir að uppfylla einhverjar kröfur til þess að ná.
Ég byrja á háls-nef- og eyrna á þriðjudaginn og hlakka til. Það á að vera mjög góð deild, og við fáum að gera margt. Það er búið að leggja skema fyrir allan mánuðinn til þess að sjá til þess að við náum öllu. M.a. förum við einn dag til háls- nef- og eyrna læknis á stofu niðri í bæ.
Jákupi tókst að gabba mig upp úr skónum 1.apríl. Hann sendi mér sms um að við værum búin að fá 4 sólarhrinsgvaktir aukalega í vinnunni, m.a. daginn fyrir og daginn sem hann á að fara í próf í næstu viku, og ættum því að taka 8 vaktir í allt þennan mánuðinn. Skipulagsheilinn minn byrjaði alveg fullblast að vinna, þetta var meira vesenið....ég þyrfti að taka tvær vaktir í röð svo hann kæmist í próf, og ef Kristina yrði lasin yrðum við að redda pössun osfrv. Svo kom sms "við fengum líka vakt í dag, 1.apríl!". Hehe, ég var hálfan daginn ennþá að átta mig á því að mánuðurinn yrði ekki stress þrátt fyrir allt!

3 Comments:

At 9:38 PM, Anonymous Anonymous said...

HAHAHAHAHA vondur er hann HAHAHA en rosalega skil ég þig vel - skipulagselementið fer á fullt og maður er soldinn tíma að koma sér útúr því!! HAHAHHAa

Vonandi jafnið þið ykkur fljótt á pestunum svo þið getið unnið allar vaktir og það allt saman! Eruði að taka allar pestir því þið eruð að læra? HEHEHe mér finnst þið taka þetta óþarflega oft takk fyrir :)

Batnaðarkveðjur Helga Dröfn

 
At 8:29 AM, Blogger Ásta said...

Þar er ég sammála! Alveg komið nóg af hósta og hori á þessu heimili. En börnin eru snillingar í að bæta á stressið þegar mikið er að gera:)

 
At 12:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Þau verða nú að minna uppteknu foreldrana á það um hvern þetta líf snýst hehehehhe...

Gangi ykkur vel, HD&Lalli(bráðum afm.barn)

 

Post a Comment

<< Home