Saturday, April 05, 2008

Setið að sumbli





Ég fór óvænt út að skemmta mér í gær. Það eru alltaf skemmtilegstu kvöldin! Við Halldís og Berglind byrjuðum heima hjá Berglindi með smá bjór, og fórum svo á Alibi þar sem Gunni vinur okkar var dj ásamt 2 vinum sínum. Þar dönsuðum við og spjölluðum við fullt af skemmtilegu fólki. Ég og Berglind enduðum á því að fá okkur pizzusneið á leiðinni heim og nóttinni lauk kl.4.30. Ég fer svo sjaldan orðið út að dansa, að ég var eiginlega hissa á öllum troðningnum á dansgólfinu:) Þetta eru oft hálfgerðar barsmíðar, maður fær hina ýmsu útlimi slengt í sig úr öllum áttum og bjórslettur yfir allt. Það að dansa er skondin sjón, því helminginn af tímanum er maður að slást um fermeterinn sem maður stendur á.
Hápunktur kvöldsins hlýtur samt að hafa verið þegar við Berglind vorum á barnum að panta okkur drykki. Berglind réttir mér allt í einu Corona bjór og bíður mér sopa á meðan við bíðum. Ég hikaði ekki við það, og tók góðan sopa. Þá var hún bara að grínast og átti ekkert í þessum bjór. Einhver hafði skilið hann eftir á barnum, og hún tók hann af borðinu beint fyrir framan nefið á mér án þess að ég tæki eftir því. Hún hélt ekki að ég myndi drekka af honum! Vægast sagt ógeðslegt, ég veit ekkert hver átti þennan bjór! Hehehe

3 Comments:

At 2:14 PM, Blogger Halldís said...

já það var gaman hjá okkur! En þessi mynd af mér og dísu fer í heimsmetabók fyrir ljótleika. Vorum við að syngja? Ég man auðvitað ekki eftir þessu frekar en öðru þetta kvöld. úff...

 
At 2:24 PM, Blogger Ásta said...

Nei ég held ekki, haha! Bara ad vera med stæla;)

 
At 9:54 PM, Anonymous Anonymous said...

ooohhhh já svona djamm er oft skemmtilegast!
Kannast við þetta með "fermeterinn" sem er sjaldan svo stór flötur.

Frábært hvað það var gaman hjá ykkur skvísunum.

HD

 

Post a Comment

<< Home