Monday, April 21, 2008

Ulla

Ég er mikið búin að hugsa til fyrstu dagmömmu hennar Kristinar, Ulla. Við höfum ekkert haft samband við hana síðan Kristina hætti hjá henni, aðallega vegna þess að tíminn flýgur og Kristina er yfirleitt hjá dagmömmunni allan daginn. Ég er ekki viss um að Kristina muni neitt eftir henni eða strákunum hjá henni, Noah og Ahmed. En ég hringdi í hana áðan og spurði hvort við mættum koma í heimsókn á mánudaginn þegar Kristina er búin í bólusetningu kl.14. Loksins fann ég smugu á meðan krakkarnir eru hjá Ulla, svo við getum hitt þau öll í einu:) Ulla var himinlifandi, vildi endilega fá okkur í heimsókn, og sagði að fréttirnar myndu gleðja Noah mikið. Hann og Ahmed tala nefnilega ennþá um Kristinu (hún hætti um miðjan janúar) og eru búnir að skíra dúkkuna á staðnum eftir henni:-D Sætast í heimi!! Ég hlakka svo til að sjá hvort Kristina kannist við sig!

2 Comments:

At 1:29 PM, Anonymous Anonymous said...

Eru Noah og Ahmed nokkuð Talibanar?

Ef þeir eru ganga í svörtu og neita að hlusta á tónlist myndi ég vara mig!

:P

KT

 
At 9:51 PM, Blogger Ásta said...

Noah er erkidani en Ahmed greyið er innflytjandi af óþekktum uppruna (af mér amk:). Þeir voru báðir ótrúlega góðir við hana. Ég ætlaði að fara að skrifa eitthvað rasistalegt í gríni, en hef mig ekki í það, því hann er svo mikið krútt, og feimnasta barn sem ég hef kynnst:)

 

Post a Comment

<< Home