Sumarfrí!
Nú verður aldeilis gaman hjá fjölskyldunni! Við erum búin að ákveða áfangastaðinn í sumarfríinu í sumar. Við ætlum að keyra til París, með einnar nætur gistingu hvora leið í Dusseldorff, og fara í Disneyland:-) 3 daga í Disney, og 3 daga inni í Louvre, Eiffelturninum og öðru gaman. Þarna er líka sædýragarður og annað sem við kíkjum kannski á. Mikið hlakkar okkur til!!:-)
Vonandi er Kristina ekki of lítil til að hafa gaman að þessu öllu saman. Við nenntum ekki á sólarströnd. En þetta er að öllum líkindum dýrara ef eitthvað er, en verður ógleymanlegt!
Að heilsufari Kristinar er það að frétta að hún er orðin hraust. Hún er að fá tvær augntennur, en annars bara hress og kát. Við erum voða fegin, og glöð og ánægð að fá glöðu stelpuna okkar aftur. Og við ætlum að njóta þess að fara á spítalann að heimsækja Rúni og Sóley, som urðu foreldrar í gær, með hrausta barnið með okkur:) Þau eignuðust lítinn strák.
Annars eru hlaupabóluveiðar framundan. Lene og Simon fóru á veiðar hjá Annette á fimmtudaginn, í von um að smita tvíburana báða í einu. Við erum svo búin að semja um að við komum í heimsókn um leið og það fer að kræla á bólum hjá þeim. Þá er hlaupabólan vonandi komin í hús fyrir sumarið (og það sem mikilvægara er: fyrir haustið!!). Hhehe, greyið börnin fá engu ráðið;-)

9 Comments:
París er æði, við vorum þar fyrir tæpum 2 árum í sumarfríinu, vá hvað tíminn líður. Kannski þú fáir líka bónorð þar einsog ég;o)Frakkar eru samt ekkert svo glaðir þegar maður kann ekki frönsku en það reddast samt. Gott að Kristina er orðin hress.
Vá, þetta sumarfrí hljómar æðislega :) hvenær fariði?
Gott að heyra að Kristina sé orðin frísk, vonandi helst áfram. Ég myndi samt ekki fagna hlaupabólunni alveg strax, ef Kristina er eitthvað eins og stóri frændi sinn þá er hún ekkert að fara að fá hana eftir pöntun. Ég get talið amk 3 veiðiferðir, fyrir utan öll skiptin sem hlaupabólan hefur verið að ganga í kringum okkur - og hann er enn ekki búin að fá hana... við erum viss um að hún bíði færis og komi td akkúrat þegar við erum uppi á fæðingardeild eða á öðrum jafnsniðugum tíma ;)
Við förum í byrjun júlí, áður en við komum til Íslands. Ég hlakka svo til!! Hvenær eigum við annars eftir að fara svona ferð?
Hehe, ég hugsaði einmitt til Tedda, en eins og hún er búin að vera móttækileg fyrir öllum pestum undanfarið, þá er hún það vonandi líka núna!:) En það er þá vonandi yfirstaðið fyrir ferðalagið.
En bíddu okkuru splæsið þið ekki bara í bólusetningu fyrir hlaupabólu...frænka mín gerði það......
Ég hef aldrei heyrt um þá bólusetningu.... Það er hins vegar komin ný bólusetning hér í DK sem er við pneumokokkar, sem gefur eyrnabólgur og heilahimnubólgu. Ertu viss um að það sé ekki sú?
Hlaupabólan er búin að vera að ganga á leikskólanum hjá Ingu síðan í ársbyrjun og Inga er ekki enn búin að fá hana. Fyrir utan það að frændsystkini hennar fengu hana í byrjun febrúar......
Sumarfríið ykkar hljómar annars frábærlega:)
Sæl frænka, gott að Kristína er orðin hress, og góða skemmtun í París, ég á alveg eftir að fara þangað!!
Varðandi hlaupabóluna þá er til bóluefni, ég veit það því það er búið að bjóða mér að láta bólusetja Sylvíu við henni(hún er ekki enn búin að fá hana), ég held að þetta sé rútínu bólusetning í USA.
Kveðja, Kaja og co.
Já það er víst best að fara rólega í væntingunum varðandi hlaupabóluna:)
Þessi bólusetning er greinilega bara ekki í gangi hérna úti... Annars væri fínt að fá hana!
úú spennandi sumarfrí!
Frábært að Kristina Ósk sé orðin hress!:)
Post a Comment
<< Home