Sunday, April 13, 2008

Kristina er búin að öskra og grenja í ALLAN dag. Hún vaknar grenjandi og sofnar grenjandi. Ég hef átt betri daga. Ég held að ég geti hreinskilnislega sagt að þetta hafi verið með erfiðustu 5 dögum í lífi mínu. Og til að bæta ástandið er ég ekki í uppáhaldi lengur, hún vill bara vera hjá pabba sínum. Ég tek það fram að það er ekki af því að ég sé búin að missa þolinmæðina, hann er jafn hissa á þessu og ég.
Það er sem sagt ekki búið að gerast annað síðustu daga en að við höfum gengið um gólf með hana alla daga og hún hefur legið ofan á okkur á nóttinni. Við höfum alls ekki mátt leggja hana frá okkur, og hún hefur ekki leikið sér með dótið sitt í marga daga. Hún gengur óstöðugt og er búin að léttast. Hún borðar auðvitað nánast ekkert. En hitinn er farinn að lækka eftir að hún byrjaði á sýklalyfjum í gær.
Jú, ég gleymdi næstum því toppinum á öllu saman. Jákup þvoði þvott fyrir 4-5 dögum síðan og gleymdi að hengja hann upp. Ég spurði meira að segja hvort hann hefði munað það og hann sagði já. Í gær fór ég að þvo, og þar lá þvotturinn, ekki búið að hengja hann upp. Og allt myglað. Og þetta var að mestu fötin mín. Karlmenn.

7 Comments:

At 9:01 PM, Anonymous Anonymous said...

Æ greyið litla, agalegt að hún sé svona veik, já og greyið þið líka. Þetta hlýtur að reyna á, en vonandi er þetta á uppleið hjá henni núna með sýklalyfjunum. Stay in there! :) Mbk.KatlaÞöll

 
At 12:50 AM, Blogger Unknown said...

Æi litla skinnið:( þetta er agalegt ástand, ég vona innilega hennar og ykkar vegna að þessi svaka veikindatörn fari að verða búin!

Hef lent í ýmsu svipuðu með þvottamál hér á bæ og er það ástæðan fyrir því að Rúnar má ekki lengur koma nálægt þvottinum, held að hann hafi ekki verið neitt ósáttur við að vera settur í það bann;)

 
At 2:05 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég hef ákveðið að fórna Grána gamla og brenna hann í garðinum til að milda guð. Kristina ætti því að vera orðin hraust á morgun klukkan 14:00. -það tekur guði ákveðinn tíma að meðtaka svona fórnir.

Samúðarkveðjur úr Fífurimanum.

:x

Kristinn

 
At 12:16 PM, Anonymous Anonymous said...

aaaaaaaaahhhhhhhhh hvar endar þetta? Jiminn eini.

Sendi "heilsukveðjur" yfir hafið til ykkar. Með vott af orku til að vaka og vera til :)

Helga Dröfn.

 
At 8:07 PM, Anonymous Anonymous said...

Hmm svona lítil stelpa með þvagfærasýkingu, það er nú eitthvað gruggugt, vill enginn rannsaka það frekar? Vonandi fer henni að batna og öskrunum að linna. Knús Heiðdís

 
At 10:04 PM, Blogger grojbalav said...

Oh þú átt alla mína samúð, stundum fær maður alveg nóg af þessum veikindum.
Nói er búinn að vera í sinni törn síðan 15.jan. Vonandi fer þetta að lagast hjá ykkur, er ekki alltaf sagt um 2 ára?
Ef lyktin festist í fötunum þínum þá er það bara að smella þeim í edikbað og aðra atrennu í þvottavélina. Vonandi verða þau í lagi;)

Bestu kveðjur, Vala og co.

 
At 1:53 PM, Blogger Ásta said...

Heiðdís: Jú, við förum með þvagprufu í næstu viku til þess að sjá hvort allt hafi lagast. Vonandi var þetta bara einstakt tilfelli, og endurtekur sig ekki.

Vala: Takk fyrir það! Jedúddamía, 15.jan, það er ansi löng veikindatörn! Það hlýtur að fara að taka enda. Þetta er sko ekki gaman. Varðandi fötin, þá endaði þetta betur en á horfðist, það er engin lykt sem ég hef tekið eftir, sem betur fer. Takk fyrir góð ráð:)

 

Post a Comment

<< Home