Þvagprufur og letihaugar
Ég heyrði alveg stórkostlega athugasemd í dag. Ég og Kristina vorum í Rosengaardcentret að safna þvagi (önnur saga að segja frá því) og vorum að bíða eftir lyftunni til þess að komast með kerruna með okkur upp frá salernunum. Þá kom ung stelpa út af salerninu og byrjaði að ganga upp tröppurnar. Þá kallaði vinkona hennar til hennar: "af hverju tekurðu ekki lyftuna?!" Þetta var nota bene ein hæð:)
Ég hafði samband við lækninn okkar í dag, sem bað mig um að koma með þvagprufu frá Kristinu. Við þurftum því að fara í apótekið og kaupa poka sem hægt er að líma á hana inni í bleyjunni. Svo gaf ég henni að borða og drekka og labbaði um á meðan ég beið eftir að hún pissaði. Svo fórum við með prufuna til læknisins. Hún er með blóð og bakteríur í þvaginu, fyrir áhugasama:) En hún er ekki nógu slöpp til þess að verða lögð inn. Við eigum að skila annarri prufu til ræktunnar á mánudag.

4 Comments:
Æjh elsku litla snúllan, var svo voðalega veik að sjá í dag...Æ mér finnst nú svoltið spes að eiga að bíða fram á mánudag :S ...jæja en knús frá mér, heyrumst á morgun skvís!Mbk.Katla Þöll
Blóð :( hvað þýðir það? ég sé fyrir mér eitthvað slæmt??
Krullan
Það getur þýtt að hún sé með þvagfærasýkingu. Við fengum sýklalyf fyrir hana í gær.
ok. Þó "ekki verra" en nógu slæmt samt :(
BATAKVEÐJUR HD
Post a Comment
<< Home