Skokkgleðin -nú á það að vera!
Ég fór út að skokka áðan, en er annars búin að vera óheyrilega léleg að drífa mig af stað. Ég fer ekki nema ca einu sinni aðra hverja viku eins og er. Nema að ég hitti á leiðinni 4 bekkjafélaga að skokka í sitt hvoru lagi og systur vinkonu minnar! Þegar ég mæti svona fólki sem ég þekki dáist ég alltaf að því hvað þau eru dugleg að hreyfa sig reglulega, því ég veit auðvitað sannleikann um mig:) Kannski hittist þannig á að þau eru alveg jafn löt og ég, og þau eru að hugsa það sama um mig?? Það er gott að það er það kalt í veðri ennþá að maður er svo dúðaður að það er auðvelt að fela allt síðuspik sem myndi koma upp um letina:D hehe

0 Comments:
Post a Comment
<< Home