Wednesday, February 13, 2008

Sagan endalausa

Ég þykist vita að allir séu orðnir þreyttir á að lesa um verkefnið endalausa, en óheppni mín er takmarkalaus! Án gríns.
Ég get ekki fengið tölfræðiforrit fyrr en á morgun. Allt í lagi með það. Þannig að ég er búin að nýta tímann í annað á meðan. Nema hvað að ég var að uppgötva að 7 af þeim 223 sjúklingum sem ég er að nota, eru ónothæfir og ég þarf að byrja frá byrjun með ALLT. Bráðum myrði ég einhvern! Ég var búin að reikna næstum alla tölfræði, byrjuð að búa til stöplarit og búin að skrifa allt sem hægt var hingað til.
Ég ætla út að hlaupa til þess að losa um gremjuna. Vonandi mæti ég engum fyrsta korterið.

6 Comments:

At 10:52 PM, Anonymous Anonymous said...

Óskapar óheppni er þetta hjá þér Ásta mín!!
Skil þig vel að fara út að hlaupa til að losa um gremjuna, ég er loksins komin með lögin úr Footloose á ipodin minn og vá hvað það er skemmtilegt að hlaupa núna! Ég held ég hafi farið 5 sinnum á hana í bíó í den! Ég sé alveg atriðin í huganum og þarf að vanda mig við að syngja ekki upphátt með!!
Spurn hvor er meira ógnvekjandi, þú að springa úr gremju eða ég að syngja footloose á fullu!!
Baráttukveðjur, Kaja.

 
At 3:41 PM, Anonymous Anonymous said...

finn til með þér, varað verða brjáluð á þessu verkefni og ætlað vona að það sé nógu gott svo ég þurfi ekki að eyða meiri tíma í það. gangi þér vel!

 
At 9:01 AM, Blogger Ásta said...

Kaja: Hehe, ég legg ekki í að mæta þér að syngja footloose:) En ég myrti engan!

Heiðdís: Já, þessi verkefni eru ansi tímafrek. Ég er miklu lengur að þessu en ég hélt, en ég valdi týpu 2, þannig að það eru svo margir óútreiknalegir faktorar í þessu:(

 
At 7:21 PM, Blogger Unknown said...

Ég er ekki orðin þreytt enn, ég er í svo góðri æfingu eftir allt vælið hennar Sigrúnar um lokaritgerðina á túttublogginu;)
En svona grínlaust þá vona ég að þetta fari allt að smella hjá þér!

Fjóla sem er ekki að gera neitt verkefni eða ritgerð

 
At 1:00 AM, Anonymous Anonymous said...

um hvað ertu að skrifa? - mátt koma með eina færslu um það :)
En er það ekki dæmigert að þegar allt á að ganga smurt þá bilar ALLT!!

Helga Dröfn

 
At 9:49 PM, Blogger Unknown said...

Hi aftur skvís
kíktu við tækifæri á síðuna hjá karen og skoðaðu baðmyndirnar í ennþá meira í feb.

 

Post a Comment

<< Home