Sunday, February 24, 2008

Labbilabb

Litla fjølskyldan fór í gær í Løvens hule, sem er stórt leiksvædi fyrir børn med boltalandi, rennibrautum og fleiru. Um leid og vid settum Kristinu nidur hjá hinum krøkkunum, brosti hún út ad eyrum og byrjadi ad brølta um. Hún skreid yfir hindranir og skellti sér í rennibrautina sem endadi í boltalandinu, og skemmti sér afar vel! Hún elskar ad fylgjast med ødrum børnum. Í lokin eftir mikid brølt og mikid gaman, sat hún og horfdi á krakkana hlaupa um. Thá stód mín bara upp og gekk af stad!:) Hún hefur í 2 mánudi tekid 2-4 skref og sídan sest nidur, en frá og med midjum degi í gær gengur hún á milli hluta, í 8-10 skrefum, nokkud óstødug en gengur thó! Yes! Ég var farin ad verda ótholinmód, allir hinir krakkarnir eru løngu búnir ad taka framúr thegar kemur ad thví ad ganga. En dóttir mín er bara svo ægilega varkár:)

Annad mál er ad hún er alls ekkert varkár thegar kemur ad mømmu hennar. Ég veit ekki hversu mørg høgg mér hefur verid veitt á nefid sídasta hálfa árid! Kristina sefur oft stóran hluta nætur uppi í rúminu okkar, vegna tanntøku, eyrnaverka, magapínu eda annars, og thá á hún thad til ad sparka rækilega í okkur foreldrana auk thess ad skalla okkur í andlitid. Oftum ligg ég og er jafnvel ad dádst ad henni sofandi (børn eru fallegust sofandi) thegar hún ákvedur ad hún sé búin ad fá nóg af thví ad liggja á theirri hlidinni, og snarar sér yfir á hina, á sama tíma og hún fleygir hausnum í nefid á mér! Ég skil ekki af hverju hún tharf alltaf ad hitta á nefid á mér (kannski skarar ættarnefid bara einum of langt fram, ha?). Einu sinni skalladi hún mig thó í "tindingen" og ég fékk kúlu. En ég skil sem sagt ekki af hverju barnid er ekki búin ad brjóta á mér nefid. Henni finnst best ad liggja ofan á mér eda mjøg nálægt amk, og oftar en ekki kúrir hún sig ofan í hálsakotid á mér. Best í heimi. Í gær var henni illt og eftir 2ja tíma svefn í eigin rúmi, vard ég ad taka hana uppí og svæfa hana aftur. Thá lagdist hún med kinnina á andlitid á mér svo ég myndi ørugglega kyssa hana:-D Mjúka barnid mitt.

2 Comments:

At 12:21 PM, Anonymous Anonymous said...

Sæl frænka,
að sjálfsögðu vildi Kristína Ósk bara ráða því sjálf hvenær hún byrjaði að labba, kannski voru bara ekki nógu margir áhorfendur fyrr en þarna???
Er núna með Gunnar og Sylvíu í verðlaunaprógrammi ef þau sofa í sínu rúmi, ef þau fá að ráða þá eru þau bæði uppí, Gunnar liggur límdur við mann með aðra löppina yfir manni og gnístir tönnum á fullu og Sylvía liggur hinum megin og heldur í puttann á mér og ég sef EKKI NEITT!!!
En þetta verðlauna dæmi gengur ótrúlega vel og það er mikill munur!
Baráttukveðjur, Kaja frænka.

 
At 4:18 PM, Blogger Ásta said...

Já, hún á það til, að vilja ráða öllu sjálf:) Mjög ákveðin ung dama!
Ég á eftir að hafa hana uppí fram á unglingsár held ég, nema að við byrjum á svona verðlaunaprógrammi eins og þið. Góð hugmynd! Verst að við þurfum að bíða þangað til hún skilur prógrammið, hehe..
Gangi ykkur vel með uppeldið! Það skiptir börn greinilega engu máli hvort mamma fái einhvern svefn, bara að þau liggi eins og þau vilja:)

 

Post a Comment

<< Home