Friday, February 29, 2008

Kristina morgunhani

Er ekki meiningin að börn verði svo þreytt þegar þau séu að læra að ganga? Noti meiri orku og svona? Kristina vaknaði kl.5 í morgun og var tilbúin að byrja daginn! Fyrir stuttu síðan var hægt að treina það aðeins að fara á fætur, því hún lá á milli okkar og brölti, og sofnaði jafnvel aftur ef við vorum heppin.... En núna klifrar hún yfir mig um leið og hún vaknar og rennir sér framúr rúminu. Það er misgott hvað hún er að verða sjálfbjarga %-) Það var ekki annað að gera að skiptast á að sofa, og Jákup fékk fyrsta vinnutjansinn:)

6 Comments:

At 12:17 PM, Blogger Unknown said...

Það væri nú óskandi,
Að þau svæfu meira og betur! karen er byrjuð að labba og er ekki mikið fyrir að vera kyrr á sama stað í langan tíma. En hún sefur samt bara í klukkutíma á daginn (í mesta lagi 1 og hálfan) og er oft að vakna á nóttunni og vaknar oftast hress um 5-6leytið, reyndar fyrir ca mánuði síðan fór ég að geta svæft hana aftur með herkjum. Fyrir þann tíma var oftast fótferðatími á þessu heimili um 5-6leytið.
Mér fyndist ekkert leiðinlegt ef hún færi einhverntímann á árinu að sofa alla nóttina!!

 
At 5:56 PM, Blogger Ásta said...

Þær eru bara alveg eins á fleiri sviðum! Þetta hljómar nákvæmlega eins og Kristina, hún sefur þó aðeins meira hjá dagmömmunni, en ekki hér heima. Hún má ekki vera að því að sofa, það er alltaf svo mikið að gera hjá henni:)
Þær eru bara sætari fyrir vikið;)

 
At 8:24 PM, Blogger Unknown said...

Það er bara alltof gaman að vera til, til hvers að sofa.
þær eru nottla bara sætastar þessar skvísur og fyndið hvað þær eru líka líkar að mörgu leyti;)

 
At 10:27 PM, Blogger herborg said...

Á ég að gera ykkur pínu abbó:) Við þurfum nær alltaf að vekja Ingu Bríeti, og viðkvæðið er jafnan "ég sofa meira.....".

Ég vona það besta með numero 2!

 
At 10:30 PM, Blogger herborg said...

Því má kannski bæta við að Inga er ekki mikið fyrir það að fara að sofa á kvöldin, sofnar aldrei fyrr en 9. Börnin ykkar sofna kannski fyrr.....

 
At 3:24 PM, Blogger Ásta said...

Haha, já í seinasta lagi kl.7, sem er í fínu lagi þar sem ég er sjálf að fara að sofa uppúr kl.9:) Enda er start hérna kl.6.30 til að ná á spítalann á réttum tíma.

 

Post a Comment

<< Home