Jákup hélt upp á afmælið sitt á laugardaginn og það kom skari af fólki. Það var virkilega gaman að hitta alla, og Jákup var mjög sáttur. Þegar fólkið fór í bæinn um tvöleytið ákvað ég að verða eftir, af því að ég var dauðþreytt, enda vaknaði ég kl.7 um morguninn. Ég fór bara að taka til eftir partýið og dreif mig svo bara í rúmið, nema að ég tók eftir að það voru eitt par kvenmannsskór eftir í ganginum og þegar ég kom inn í svefnherbergi lá þar einn jakki! Ég get svo svarið það, ég kíkti í alla skápa og og leitaði að þessum dularfulla aðila sem varð eftir! En það var enginn..... Ég er búin að finna eiganda jakkans, en ekki skónna:=) Hver fer í bæinn án skónna sinna?? Gefðu þig fram kona!:D
Annars er hér glampandi sól alla daga og 20-22 stiga hiti og við lögðumst bara út í garð í gær eftir skóla og nutum sólarinnar. Það er ansi erfitt að lesa í þessari bongóblíðu eins og hann frændi minn segir. En nú verð ég að taka mig taki, það er próf í næstu viku og nóg að lesa!

5 Comments:
Múahahahhaa fara í bæinn án skónna sinna.. Var þetta enginn í húsinu sem hvarf heim fyrr?? Þetta er dáldið spes - okey með jakkann... en skórnir :D magnað. Held að ég þyrfti að vera dáldið hressilega ölvuð til að gleyma þeim :)
Eru skórnir í þinni stærð? Kannski varstu að græða?!?!?!! :D
Því miður! Einni stærð of lítið!:( Annars hefði ég nú verið heppin:D
Ég er helst á því að einhver daman hafi tekið með sér tvö pör og ætlað að skipta... Það var enginn það ofurölvi þegar þau fóru:)
dísess ég gleymi alltaf að kvitta. Þetta var víst ég, Helga Dröfn, sem er alltaf anonymous - sorry. Kannski farin að þekkja mig
Ertu viss um að hún hafi ekki óvart tekið einhverja af þínum skóm óvart?
Dórið
Hahaha, ég var ad komast ad thví hver á skónna! Hún Vigdís Magg tók med sér ekstra skó og gleymdi theim:) Annars hefdi ég alvarlega farid ad skoda hver væri kiwi í hópnum;)
Post a Comment
<< Home