Wednesday, May 03, 2006

Sumarið er komið!

Já loksins byrjaði að hlýna fyrir alvöru og ég var of vel klædd á leiðinni í skólann í morgun. Það er hægt að byrja tilraunir í að breyta húðlit héðan í frá:)
Við J vorum svo svöng eftir skóla að við brunuðum heim og elduðum heimatilbúna hamborgara kl.15:-) Þá verður bara eitthvað snarl í kvöldmatinn. Inn á milli lestursins! Það er alveg vitlaust að lesa fyrir skólann, og svo ætlar Jákup að halda upp á afmælið sitt á laugardaginn, þannig að eitthvað verð ég að taka til líka. Skrítið hvað tíminn er fljótur að líða á milli afmælisdaga, við verðum eldri og eldri, og náum ekki að fylgja með í huganum:)
Ein mynd í lokin af Jákup að gefa Tobias mauk að borða í annað sinn. Jákup tók sig vel út, og barnið elskar hann eftir þetta. Hann fær alltaf risabros í hvert sinn sem Tobias sér hann:)

6 Comments:

At 4:23 PM, Blogger herborg said...

Það er eins og Jakup hafi ekki gert annað, tekur sig vel út með drenginn:)

 
At 12:55 AM, Anonymous Anonymous said...

Flottur :)

 
At 7:23 AM, Blogger Ásta said...

Tvíburarnir eru í miklu uppáhaldi hjá honum blessuðum:)

 
At 4:43 PM, Anonymous Anonymous said...

Já, þeir eru báðir mjög einbeitt á svip! Þetta djobb er greinilega tekið alvarlega ;-)

Ekkert smá gaman að heyra í þér um daginn! Er með samviskubit yfir því hvað við töluðum lengi. En eins og þú bentir réttilega á verðurðu rík í sumar, hehe!

Kv.
Sigrún Ósk

 
At 4:45 PM, Anonymous Anonymous said...

"Einbeitt" er ný útgáfa af orðinu einbeittur sem er notað í stað "einbeittir" þegar um er að ræða tvo karlmenn á mjög mismunandi aldri.

Þetta var fróðleiksmoli dagsins!

Aftur,
SÓK

 
At 8:36 AM, Blogger Ásta said...

Ooooo, mig dreymdi í nótt að ég fyndi bréf frá bankanum þar sem í stóð að ég ætti 2 milljónir danskar! Einhver góðhjartaður hafði stofnað reikning fyrir mig sem barn. Mikið var súrt að vakna til raunveruleikans! Eða...ekki svo slæmt svo sem:) J á afmæli og ég vakti hann kl.7 með gjöf og söng:-)
En nú á ég að vera búin með verkefni eftir klst! Og ég er bara að teygja lopann:)

 

Post a Comment

<< Home