Tuesday, May 16, 2006

Sko, þetta gátum við!



Jæja, við fórum í sónar í dag og sáum lítinn spriklara sem hefur það gott:D Þar með getum við ekki haldið þessu leyndu meira (sem er erfitt fyrir, það virðast allir vita það hvort eð er:) Krílið er 11 vikna og kemur í heiminn í kringum 6.des, litlu systur hans Jákups til mikillar gleði, því hún á afmæli 7.des.
Jákup var ekki lengi að sýna öllum vinunum (og öllum öðrum sem gengu framhjá....þetta fór heldur ekki framhjá bekkjarfélögum mínum...) sónarmyndina í dag, stoltur og glaður! Ég var hins vegar eitthvað feimnari við þetta, finnst við svolítið snemma í því. En ég er samt fegin að hætta þessu leynimakki:)

27 Comments:

At 8:17 PM, Blogger Ásta said...

P.s. þetta sem er við hliðina á barninu mínu er blaðran mín -full! Ég fann ekki að ég þurfti að pissa fyrr en hún byrjaði að ýta á magann á mér!:) Jákup skammaði mig fyrir að fylla svona á mér blöðruna, bara til ama fyrir krakkann:D

 
At 9:41 PM, Anonymous Anonymous said...

Ullabullabulllll!!!! Til lykke og til hamingju og simsalabimms.

Þetta verður frábært :)

KT -nöttkeis.

 
At 9:44 PM, Anonymous Anonymous said...

En hvað þetta er flott mynd af erfingjanum, krílið hefur verið á fleygiferð eða hvað?

Er ekki yfirleitt talað um að það sjáist meira/betur í snemmsónar þegar blaðran er full? Man ekki betur en að mér hafi einmitt verið bent á að vera ekki nýbúin að pissa.

Oh það er svo gaman að þessu, verst að ég er orðin alveg veik aftur - ég heyri varla í sjálfri mér fyrir eggjastokkunum! Ég verð bara að fá að njóta þess í gegnum ykkur :)

 
At 9:52 PM, Anonymous Anonymous said...

Æææ innilega til hamingju :) Frábært að sjá fyrstu myndina núna.
Gangi ykkur ofsalega vel með þetta allt.

Kyss kyss Helga Dröfn og Lalli frændi

 
At 9:54 PM, Blogger Ásta said...

Haha, takk fyrir:)
Já, krílið var á fleygiferð, ljósan var í mestu vandræðum að mæla það og ná mynd! Mikið stud, Jákup er viss um að þetta sé strákur þar af leiðandi:D
Það líður nú ekki á löngu áður en Teddi strumpur er orðinn stóri bróðir;)

 
At 10:31 PM, Anonymous Anonymous said...

Hann fær fyrst að njóta þess að kenna litlu frænku/frænda prakkarastrikin sín ;)
Ég er líka búin að átta mig á því að þetta er ólæknandi andskoti - mig langaði strax í annað á meðan ég var uppi á fæðingardeild með Tedda nýfæddan. Á meðann verið var að mæla hann og vigta sagði ég við K að ég væri til í að gera þetta aftur daginn eftir :)
Ég var líka með einn 10 daga í fanginu í gær og jedúddamía hvað ég hefði verið til í að fara með hann heim! Veit samt ekki alveg hvað foreldrarnir hefðu sagt við því ;)

 
At 10:33 PM, Blogger Ásta said...

Hahaha, svona líður mér alltaf þegar ég er að vinna á barnagjörgæslu. Mig langar að stinga þeim undir handlegginn og taka þau með mér heim:) En nú er engin þörf á því, hjúkket;)

 
At 10:47 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju:)!! Vííí en gaman..spriklari og fjörkálfur eins og foreldrarnir..þetta gera SS pulsurnar!!;)

 
At 10:51 PM, Anonymous Anonymous said...

:D :D :D æ en æðislegt innilega til hamingju, jesús hvað þetta eru skemmtilegar fréttir :D og gaman að sjá svona skýra mynd af litla baby ;)
Knús til ykkar beggja (eða þriggja)

 
At 10:52 PM, Blogger Ásta said...

Takk:)
Já íslendingar borða SS pylsur!;)

 
At 10:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Ohh en æðislegt! Innilega til hamingju!! :)

 
At 12:13 AM, Blogger herborg said...

Innilega til hamingju enn og aftur!!!

Gaman að þið náið að vera með í 2006 liðinu:) Bestu kveðjur til ykkar allra!:)

 
At 12:50 AM, Anonymous Anonymous said...

hæ hæ!
Þetta gátuð þið!! Sko ykkur og til hamingju, sjáumst bráðum.
kveðja

 
At 2:35 PM, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju bæði þrjú :D Mér skilst víst að Des sé góður mánuður en Íris á afmæli 8 ;)
Haukur

 
At 4:53 PM, Blogger Ásta said...

Takk takk:-)

 
At 8:26 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ til hamingju !!! Gangi þér æðislega vel. kveðja Þórey, Ingþór Jón og Svavar

 
At 8:44 PM, Anonymous Anonymous said...

This comment has been removed by a blog administrator.

 
At 8:51 PM, Anonymous Anonymous said...

Til lukku og til hamingju
Krílið líkist so akkurat affa sínum.
BESTU HEILSUR
Omma

 
At 8:58 PM, Blogger Ásta said...

Takk æðislega öll sömul:)
Mér finnst þessar vikur sem liðnar eru nú þegar hafa flogið af stað. Lífi okkar er gjörbreytt áður en við vitum af!
Færeyska amman var að skoða myndina af krílinu og fannst það helst líkjast afanum:)

 
At 10:04 PM, Anonymous Anonymous said...

til hamingju ásta og jákup. En bíddu þið gleymduð að láta mig vita, ætluðum við ekki að vera ólétt á sama tíma og passa svo fyrir hvert annað? Næ víst ekki að vera á þessu ári úr þessu...
kveðja
heiðdís

 
At 12:18 AM, Anonymous Anonymous said...

So sætt!! Hjartanlega til hamingju elsku rúsínan mín! Við sjáum bumbuna í sumar og svo krílið um jólin!!

Dórið

 
At 3:26 PM, Anonymous Anonymous said...

Til lukku bæði tvö! :-)

Gaman, gaman - en samt svo ROSALEGA skrítið. Úbbasíííí...

Er ég eina manneskjan sem sé hvorki barn né blöðru á þessari mynd?? :-/ Hehe, svona er maður langt frá því að hafa þetta í sér... Þú verður bara að benda og útskýra þegar þið komið heim, haha.

Kv.
Sigrún Ósk

 
At 8:07 PM, Blogger Ásta said...

Hahaha mér finnst svo augljóst hvað er hvað á myndinni! Kannski þorir enginn annar að viðurkenna að sjá ekki neitt á þessari merkilegu mynd:) Ég held að ég sé bara svona "arbejdsskadet":D

Það er alla veganna bæði hendur og fætur á þessu kríli, og þá er ég ánægð! Það er hins vegar ekki nema ca. 5cm á lengd greyið, þannig að það er kannski ekkert skrítið að þú sért í vafa:)

 
At 2:35 PM, Anonymous Anonymous said...

Mér finnst þetta einmitt svo flott og skýr mynd - krílið hefur stillt sér upp fyrir myndavélina ;) Teddi var sko ekki svona samvinnuþýður á þessum aldri, við eigum bara nokkrar hliðarmyndir af honum :Þ
Hins vegar held ég að sónarmyndir séu eitthvað sem maður lærir að skoða og túlka, ég skildi td ekki upp né niður í 20 vikna sónarnum þar sem verið var að skoða öll helstu líffærin, úff ég sá ekki 1/3 af því sem hjúkkan var að reyna að benda okkur á.

 
At 3:32 PM, Blogger Óli said...

Innilega til hamingju elsku Ásta og Jákup. Þetta verður án efa eitt myndarlegasta og gáfaðasta barn sem læknastéttin hefur eignast.

 
At 5:02 PM, Blogger Ásta said...

Haha, það er aldeilis:) Takk!

 
At 10:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Jú meirað segja ég sé talsvert greinilega barnið og ég fattaði líka hvar blaðran er :) Ekkert smá stolt af mér.

HD

 

Post a Comment

<< Home