Friday, May 19, 2006

Livet efter eksamen

Það er gott að eiga sér líf á ný! Var í prófi í morgun og er ekki búin að gera annað en að læra síðustu tvær vikur. Það gekk hins vegar assskoti vel og fékk ég 90% rétt:D
Svo er það eilífa eirðarleysið í mér eftir svona próftörn! Ég get ekki slakað á...

Ég komst að því í dag að ein vinkona mín í bekknum á að eiga nokkrum dögum seinna en ég í des. (Fyrir utan hinar 6 sem eru óléttar!!) Það er ferlega gaman að við skulum geta verið samferða með þetta:) Gaman að þessu.

Annars var ég að taka viðtöl við umsækjendur inn í læknanámið í gær. Það er þannig að helmingur þeirra sem komast inn, kemst inn á stúdentseinkunn, og helmingur er valinn út (af 1700 umsækjendum) og boðuð í viðtal, þar sem þau eru svo metin. Af 300 sem koma í viðtöl, fá ca.150 tilboð um pláss. Það var ferlega gaman að vera með í þessu, þó að ég hafi verið svolítið stressuð yfir prófinu daginn eftir. Ég var í hóp með eldri lækni, magaskurðlækni, og í lok dagsins sagði hann að ég ætti bara að láta vita ef okkur vantaði "afa" til að passa fyrir okkur, og eins ef mig vantaði sambönd innan skurðdeildarinnar, þá ætti ég bara að hafa samband:-) LOL! Hress kall!!
Mér fannst allir umsækjendurnir svo góðir, það var erfitt að meta þau. Ég vildi helst sjá þau öll komast inn! Allra helst hefði ég þó viljað sjá mitt eigið viðtal og mat endurspilað fyrir mig!:) Það væri gaman að sjá hvernig það gekk! Ég skil eiginlega ekki í dag hvernig í ósköðunum ég komst inn fyrir 5 (!!!!!) árum miðað við hversu vel undirbúnir allir umsækjendurnir eru. Ég man að ég hugsaði ekki einu sinni út í hvað ég ætlaði að segja í viðtalinu mínu, fyrr en ég sat í lestinni á leiðinni til Odense:) Slúbbert!

8 Comments:

At 1:21 AM, Blogger herborg said...

Þú hefur örugglega staðið þig vel þarna fyrir 5 árum:) annars værir þú ekki þar sem þú ert í dag.

Speki dagsins er í boði Herborgar!

 
At 12:26 PM, Blogger Ásta said...

;) Kröfurnar voru sem betur fer heldur ekki jafn miklar fyrir 5 árum:)

 
At 12:24 PM, Blogger benony said...

Elskan mín! Til hamingju!!!! Ég smá sein en váhh hvað þetta er gaman.

 
At 10:58 PM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með að vera búin í prófunum og að það gekk svona vel. Það er ekki slæmt sko! :) Gott fyrir sumarið!

HD

 
At 9:30 AM, Blogger Ásta said...

Ég er ekki svo heppin að vera búin í prófunum:) Við tökum bara eitt fag í einu, er að byrja á nýju fagi í dag og klára ekki fyrr en 30.júní! En takk samt;)

 
At 2:04 PM, Blogger Margrét Lára said...

Vá vá vá hvað það var nú gaman að kíkja inn á bloggið þitt í dag... ég hef ekki séð fréttirnar um bumbukrílið fyrr enn núna í dag og get svo sannarlega samgleðst ykkur af öllu hjarta :D

 
At 11:17 PM, Anonymous Anonymous said...

TIL HAMINGJU!!!!! :) Eg er ad tala um olettuna by the way.. en til hamingju med glaesilegan arangur i profinu lika :)

Asdis

 
At 9:28 AM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir það:)
J segir að það heiti "rúllustatív á hjólum fyrir manneskjuunga". Nei, það heitir víst bara barnavogn;)
Og íþróttakennari heitir ekki kroppatemjari heldur venjari:)
hehe

 

Post a Comment

<< Home