Saturday, May 27, 2006

Það bloggar enginn annar, þannig að ég held bara áfram....
Ég átti að fara að vinna í morgun, en barnið sem ég átti að passa reyndist vera í einangrun vegna heilahimnubólgu, og ég fékk þar af leiðandi frí vegna óléttu:) Ekki fannst mér það leiðinlegt, og hlakkaði mikið til að fá að sofa út! Þegar ég glaðvaknaði í morgun var klukkan þó ekki nema 7:( Þannig að ég borðaði bara morgunmat, kom mér vel fyrir uppi í rúmi og kláraði alveg hreint snilldar bók, og hló hástöfum við hliðina á svefnburkunni minni. Mér tókst að vekja hann endanlega kl.10.30 og sannfæra hann um að koma með mér út að borða brunch niðri í bæ, mmmmmmm.... Þar hámuðum við í okkur pönnukökum, sírópi, croissants, kokteilpylsum, brauði, osti og appelsínusafa ásamt hinum ýmsu ávöxtum. Staðgóður hádegismatur. Þetta ættum við að gera hverja helgi!

Svo röltum við í gegnum bæinn og kíktum í búðir, og fórum svo í garðútsölu hjá útivistarbúð í bænum þar sem var 70% afsláttur á flest öllu. Við keyptum nýjan bakpoka/skólatösku handa Jákup, en mér var neitað um að kaupa flíspeysu vegna þess að ég myndi ekki passa í hana hvort eð er eftir nokkra mánuði..:( Hann lofaði mér að kaupa allt sem ég girnist um leið og ég er orðin eðlileg stærð aftur. Ég ætla að láta hann standa við það!

Svo töluðum við við hann pabba gamla, sem tjáði okkur að hann væri líklega að koma í heimsókn þann 16.júní í 2 daga. Kristinn bróðir, Pálína og Teddi koma svo daginn eftir, þannig að ég fæ fullt af heimsóknum bráðum:D Jibbý! Systir hans Jákups er að koma til okkar á sunnudaginn og mamma hans og pabbi í örstutta heimsókn þann 10., þannig að það er nóg að gera:) En þau sjá okkur heldur ekkert næstu mánuðina, þar sem við ætlum bæði heim til Íslands í sumar.

2 Comments:

At 10:53 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég blogga eins og vitlaus maður!!!

Enda er ég frekar vitlaus maður, en það er önnur saga.

Hvað verður pabbi að þvælast 16.?

Hmmm, æahugavert :)

KT

 
At 9:30 AM, Blogger Ásta said...

Þú og ég baby:)

Pabbi er að fara til Spánar á námskeið, skilst mér, og ætlar að stoppa við á bakaleiðinni. Það verður gaman hjá okkur!

 

Post a Comment

<< Home