Dóra stúdent!
Hún Dóra litla systir mín fetaði í fótspor systur sinnar í gær og gerðist stúdent! Þó með mun betri árangri en systirin, hehe:) Sjá myndir hér. Innilega til hamingju Dóra!
Á meðan fjölskyldan fór út að borða heima á Íslandi í tilefni dagsins, var ég hér ein heima að slefa mig langaði svo í Domino´s pizzu eða bara einhverja íslenska pizzu, en eldaði fiskibollur og kartöflur í staðinn:( Ég var að reyna að fá þau til að panta fyrir mig á Caruzo og senda með hraðpósti, en eitthvað hefur það klikkað:)
Mmmmmm, talandi um mat, mig er búið að dreyma um íslenskar kræsingar síðustu daga. Ég er meira að segja byrjuð að skipuleggja hvers konar brauðtertu og kökur ég ætla að baka í tilefni af afmælinu mínu þegar ég kem heim!:) Það jafnast ekkert á við íslenskar kræsingar....
Í gær gerðist líka sá merkilegi atburður að ég 1. Eyddi 4 tímum í kandídatsverkefnið mitt sem ég á að skila á næsta ári, og 2. Fór í ræktina í fyrsta skipti í margar vikur. Ég er búin að vera sök um að hugsa að ég verði hvort eð er bara feitari með hverjum deginum, líkamsrækt eður æj. En það var fínt að hreyfa sig aðeins, og ég var gjörsamlega búin á því eftir á! Ég get hins vegar ekki þakkað mínum járnsjálfsaga fyrir þennan gjörning, heldur var ástæðan sú, að það rigndi svo mikið í gær að ég fór niður í ræktina á sjúkrahúsinu eftir lærdóm, í von um að það væri búið að stytta upp þegar ég var búin að hlaupa svolítið:-) hehehe

3 Comments:
HAHAHAHHA góð ástæða fyrir ræktinni - verður maður ekki alltaf samt að hafa ástæðu? ;)
Helga Dröfn - sem þarf líka alltaf ástæðu til að hreyfa sig...
þú ert greinilega komin yfir klígjuskeiðið:)!!! hehehehe
Að mestu!;) hehehe
Mig dreymir um matinn alveg þangað til ég þarf að búa hann til eða éta hann!
Post a Comment
<< Home