Annabell og lyfjadeild
Kristina er hætt að æla og er byrjuð að óþekktast aftur. Allt að verða normal sem sagt:)
Jákup er alltaf að verða skipulagðari pabbi, man að spyrja hvernig hún svaf og borðaði hjá dagmömmunni t.d. Það er ótrúlegt hvað hún getur verið óþekk við foreldra sína þegar hún hagar sér eins og engill annars staðar. En það er víst mjög eðlilegt.
Kristina fékk fyrstu dúkkuna sína frá Ósk ömmu um helgina, og er ótrúlega ánægð með hana Annabell sína! Hún faðmar hana og notar hana sem kodda, og reynir að troða puttanum sínum upp í nefið á henni eins og á öllum öðrum. Já, dóttir mín er með neffetish! Hún reyndi að troða bíllyklinum mínum upp í nefið á mér í dag. Ég veit ekki hvaðan hún hefur þetta barnið, en henni finnst nasir afar athyglisverðar!
Mér er farið að lítast ágætlega á lyfjadeild og er að komast inn í hlutina. Ég þurfti að vísu að lesa slatta í gær, vegna þess að ég var spurð að svo mörgu á mánudaginn sem ég gat ekki svarað að mér leist ekkert á blikuna. Óþægilegt að vera tekinn svona með buxurnar um hælana! Auðvitað á maður að vera búinn að undirbúa sig smá:)
Og svo er skiptineminn að fara í fyrramálið. Mikið verður notalegt að geta aftur horft á sjónvarpið í eigin stofu, og pissað með opna hurð!

2 Comments:
Ooo, hvað þið eruð sætar mæðgurnar! Samgleðst ykkur með að losna við skiptinemann, haha =)
Takk! Við erum mjög ánægð með að vera við sjálf aftur:)
Post a Comment
<< Home