Saturday, November 10, 2007

Skiptineminn okkar

Ég er öll að koma til í að skilja ensku talaða með Ghanöskum hreim:-) Hann er ekkert að kippa sér upp við að við stundum skiljum ekki boffs, hann endurtekur sig bara án þess að breyta neinu! En það gerist sjaldnar núna að við glápum tómeygð á hann.
Fyndinn þessi menningarmunur. Hann er vanur því að þurfa ekkert að gera sjálfur, sem eini strákurinn af 4 systkinum. Þegar við ætluðum að sýna honum þvottavélina svo hann gæti þvegið af sér þessar 3 vikur sem hann er hérna, þá vildi hann ekki sjá hana, því hann kann ekki að þvo! Hann segist vera með nóg föt fyrir þessar þrjár vikur, það sé svo kalt að hann svitni ekki;) Hann er mjög upptekinn af því að ætla að höstla einhverjar stelpur, og hugsar því stöðugt um það hvernig hann komist á djammið og með hverjum. Hann segir að læknar í Ghana séu guðir, og hann vill bara giftast lækni eða bankastarfsmanni svo að börnin hans verði ekki vitlaus... hehe

Kristina sagði ekki orð fyrstu klukkutímana með honum, hún var svo hissa. Hún hefur aldrei séð svona þeldökkan mann áður, en er búin að venjast honum núna. Ég er búin að setja inn nokkur ný video af henni á barnaland. Það er komið lykilorð, ekki vera feimin við að biðja um það!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home