Tuesday, November 13, 2007

Gullhömrunum heldur áfram að rigna

Í dag hélt einn sjúklingurinn að ég væri ca.21 árs og að ég væri nýbyrjuð í læknisfræðinni. Gullhamrar eða hvað?? Undir mörgum kringumstæðum yrði ég ánægð, en mér finnst leiðinlegt að vera vanmetin:(

Ég var lengi í dag og kom heim kl.17. Þá urðum við að elda strax og baða kartöfluna og beint í rúmið. Ég sé hana ekki mikið þessa dagana:-( Jákup keyrir hana á morgnana, og fær því lengri tíma með henni, og nær í hana aftur seinnipartinn. Hún fer bráðum að gleyma hver ég er! En hún vill þó ennþá bara vera hjá mér á nóttinni þegar henni er illt. Einhvern veginn finnst mér það samt vera verri hlutskipti....þá getur Jákup alltaf sofið en ekki ég....en það er samt svolítið notalegt.

Verkefnið gengur mjög vel, ég hitti leiðbeinandann í gær (og kom þess vegna líka seint heim, 16.30) og þetta er allt að koma:-) Ég er mjög hamingjusöm með þá þróun! Það er samt brjálað að gera næstu daga, gestagangur, matarboð, afmæli, mæðragrúppa og svo er ég á sólarhringsvakt á sunnudaginn og fimmtudaginn. Einhvers staðar þarna á milli þarf ég að halda áfram með verkefnið, því ég þarf að hitta leiðbeinandann aftur í næstu viku. Það er gott að maður fær nætursvefninn sinn! NOT:-S

1 Comments:

At 11:20 PM, Anonymous Anonymous said...

Já aldeilis fallegir gullhamrar sem þú færð!
Ji hvað ég kannast við að þurfa að sjá um allt næturbrölt og reyndar kvöldbrölt líka, þar sem karen er enn að drekka á kvöldin og nóttinni þá vill hún ekki sjá pabba sinn ef hún rumskar:( hún fær svo góða þjónustu hjá múttunni sinni.
Gangi þér áfram vel með verkefnið:)

 

Post a Comment

<< Home