Friday, November 23, 2007

Mømmuhjarta?

Ádur en ég vard mamma var ég búin ad ímynda mér ad ég yrdi eins og mamma mín á nóttinni. Mamma mín var nefnilega súpermamma, og kom hlaupandi á nóttinni ef madur bara hvísladi á hana hinum megin úr íbúdinni! Thad er mér eitt atvik alveg sérstaklega eftirminnilegt. Ég var 12 ára og vaknadi um midja nótt, dróg ad mér andann dýpra, eins og madur gerir thegar madur vaknar, og fékk strax rosalega køfnunnartilfinningu. Ég var med barkabólgu og thad threngdi ad øndunarveginum. Mikid rosalega var thetta óthægileg tilfinning. Ég gat heldur ekki kallad, bara hálfhvíslad. En thad skipti ekki togum, mamma kom hlaupandi eins og hún finndi thetta á sér!

Thegar ég var nýbúin ad eiga Kristinu, vaknadi ég vid thad ad hún hreyfdi sig! Thetta var nú einum of fínstillt hjá mér, thví ég svaf thar af leidandi nánast ekkert! Thannig ad núna sef ég eins og steinn:S Ég er búin ad upplifa thad nokkrum sinnum ad ég heyri í Kristinu í svefni vera ad kvarta, oft í dágóda stund ádur en ég ranka vid mér. Í fyrradag var mig búid ad dreyma hana vera ad kalla á okkur, svo átta ég mig á thví ad hún er ad thví, og thegar ég loksins opna augun, situr litla greyid í rúminu sínu og snýr í áttina ad okkur og kvartar. Thá var ég nú ekki lengi ad kippa henni uppí og kúra saman:) En thad sem verra er, er ad Jákup heldur thví fram ad hann sé stundum ad sinna henni á nóttinni án thess ad ég verdi thess vør! Módurhjartad mitt á erfitt med ad trúa thví:( En thad er ekki ósennilegt ad streitan sem er ad herja á mér thessa dagana valdi thessu, ég er amk threyttari en ég hef nokkru sinni verid.....

Í nótt hringdi sími. Ég var í vinnunni (og er, er ad fara heim eftir smá) og var med 3 síma liggjandi; minn eiginn, vaktlæknasímann og innanhússímann. Kl.2 hringdi s.s. einn síminn, ég var alveg kolruglud og steinrotud (var búin ad vera á fullu í vinnunni í 14 tíma ádur en ég komst í rúmid) og svaradi "Forvagt geddeild Ásta" med svefndrukkinni røddu. Thá var thetta minn gsm, ekki vinnan, og Jákup var ad segja mér ad Kristina væri búin ad æla eins og múkki allt kvøldid. Svo vard hann ad thjóta af thví ad hún var ad fara ad æla aftur. Greyid litla stelpan mín! Ég gat audvitad ekkert annad gert en ad reyna ad sofa áfram, thví thad væri gott ef ég væri amk nokkurn veginn úthvíld thegar ég kem heim til ad leysa Jákup af. Nema hvad, ég er búin ad vera med einhvern stresshnút í maganum í alla nótt og lídur eins og ég sé ekki búin ad sofa neitt! Mér lídur eins og ég sé ad fara í próf eda eitthvad. Undarlegt hvad svona stressfaktor eins og vakning vid símahringingu um midja nótt getur komid manni úr jafnvægi.

6 Comments:

At 9:10 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá elsku Ásta mín. Ekki kála þér!! Fer ekki að styttast í eitthvað meira frí en jólafrí? Jiminn eini ástandið á ykkur!

Farðu vel með þig. Þú verður að hafa orku til að flytja til Íslands sem fyrst :)

Kv Helga Dröfn

 
At 9:58 AM, Blogger Ásta said...

Þetta reddast;) Ég sagði líka við leiðbeinandann minn að ég myndi fagna því meira þegar ég klára verkefnið mitt en þegar ég klára læknisfræðina! Ég sé janúar fyrir mér í hyllingum:-D Þá þarf ég bara að taka eitt fag og svo get ég einbeitt mér að verkefninu eftir það. Engin praktík alla daga líka.
En takk fyrir áhyggjurnar, hehe!

 
At 1:51 PM, Anonymous Anonymous said...

Mér finnst þú bara eiga skilið að fá medalíu,við mömmurnar erum alltaf í keppni að geta allt,verið allstaðar og aldrei þreyttar.Raunveruleikinn er bara ekki svona góður,mundu bara að knúsa stelpuna þína sem mest og hættu að hafa samviksubit.

Kveðja frá Þóru Kollu sem langar líka að vera súpermamma:-)

 
At 6:05 PM, Blogger Sigrún Ósk said...

Jahérna hér! Tek undir með hinum - farðu vel með þig! Það er ekki hægt að gera allt.

En nú verðurðu að fara að koma þér heim... þegar maður segist hafa verið með "þrjá síma liggjandi" þá er maður orðinn danskur - hahaha!!

 
At 8:19 PM, Blogger Ásta said...

Hehehe, ég tók ekki eftir þessari málvillu!:)
Takk stelpur, ég reyni að slaka á. Anda inn-út-inn-út:D
Þegar skiptineminn er farinn (eftir 72klst....hver er að telja??) þá verður fagnað!

 
At 10:23 PM, Blogger herborg said...

Ásta danska....liggjandi! hehe

Ég sakna þess ekki að vera í námi þegar ég les þetta. Og vá hvað það hefði verið miklu meira mál ef Inga Bríet hefði verið fædd!

Mundu líka að slappa af og gleyma þér:)

Bið að heilsa litla krúttinu og pabba hennar.

 

Post a Comment

<< Home