Tuesday, November 06, 2007

Einn lítill negrastrákur

Ég má til með að nota þessa fyrirsögn eins og margir aðrir þessa dagana:) Ég styð þá umræðu by the way heilshugar, þeas þá sem er á móti bókinni!
En tilefni fyrirsagnarinnar er að við erum að fá strák frá Ghana til okkar á fimmtudaginn, og sá á að búa hjá okkur í mánuð. Hann heitir Jakob (mamma hans Jákups sagði að það héti enginn frá Ghana, lol) og er læknanemi. Hann er að fara í klinik á spítalanum. Við getum fylgst að á morgnana, hehe;) Það verður spennandi að sjá hvernig sambúðin verður, en vonandi verður þetta bara gaman, að kynnast öðrum venjum og háttum! -Ef ekki verður þetta langur mánuður....

Kristina fékk rör í eyrun í gær, og gekk það öllum vonum framar. Hún vaknaði bara eftir svæfinguna, skreið í fangið á mér og fór að rétta út hendurnar til hinna barnanna. Hún grét ekkert fyrr en hún áttaði sig á því hvað hún var svöng, eftir 5klst föstu. En í nótt fór hún aftur að gráta þegar kl fór að nálgast 5 og hætti ekki fyrr en við fórum á fætur, og þá sáum við að það blæddi í öðru eyranu. Okkur var sagt að það væri eðlilegt, en kannski er rörið samt storknað til. Við förum aftur til læknisins á mánudaginn í endurskoðun. Ég held að maður eigi að passa sig á að vona að svona aðgerðir gjörbreyti öllu og að barnið fari allt í einu að sofa eins og steinn. Eða alla veganna í okkar tilfelli! Hún hefur aldrei sofið vel, og fer varla að breytast á einni nóttu héðan af.

Já, og svo byrjaði ég loksins aftur á verkefninu mínu í gær!! Undur og stórmerki! Ég ætti auðvitað að sitja og vinna við það núna, en kvíði því hálfpartinn að þurfa að vakna kl.5 í fyrramálið til þess að fara með Kristinu í strætó til dagmömmunnar, svo ég geti verið mætt á spítalann kl.7.50. Jákup er að vinna næstu 3 dagana. Svona venst maður því vel að vera á bíl;-)

3 Comments:

At 10:09 AM, Blogger Sigrún Ósk said...

Þessi "litlu negrastráka-fyrirsögn" kemur víða við! Hehe. Þetta verður örugglega gaman - að hafa einhvern í heimsókn :) Ég hitti einmitt leigubílstjóra frá Ghana sem var svo ánægður með mig og Hlédísi að hann lét okkur fá númerið sitt og vildi ólmur lána okkur húsið sitt í Ghana! Segir að það sé Afríkuland nr. 1. Hehe.

Vona að Kristinu fari að batna! Úff, ég fæ bara hroll við tilhugsunina um að fá svona rör í eyrun...

 
At 4:37 PM, Blogger Ásta said...

Við erum svakalega spennt að sjá hver þetta er! Kannski er þetta einn af 2% hvítra í Ghana (eða eitthvað svoleiðis:), það skýrir kannski nafnið;) hehe

Rörin voru í fínu lagi, við fórum í tjekk í dag. Kannski var hún bara að grenja af svengd, magapínu, hálsbólgu, hausverk eða einhvers annars....ég hlakka til þegar hún fer að tala;-)

 
At 10:19 PM, Anonymous Anonymous said...

Vá ýmislegt að gerast á litla heimilinu ykkar í Odense..

Gangi ykkur vel og vonandi breytast svefnvenjurnar fljótt...

Við 2 biðjum að heilsa hinum í famillíunni, kv. Helga Dröfn

 

Post a Comment

<< Home