Tvífarar?

Kristina dúllurass
Vinkona hennar Helgu vinkonu minnar átti stelpu í Svíþjóð 17.des, daginn eftir að Kristina fæddist. Hún var þó ekki sett fyrr en 12 dögum seinna eða svo, og ég átti 11 dögum eftir settan dag, þannig að það er smá stærðarmunur á þeim. En ég rakst á síðuna þeirra fyrir nokkrum dögum síðan og fannst alveg sláandi mikill svipur með þeim! Það er reyndar erfitt að finna myndir sem sýna það, en við foreldrarnir þekkjum svipina þeirra og erum sammála um að um tvífara er að ræða:-) Svo eiga þær næstum því sama afmælisdag. Það er ekki sólarhringur á milli þeirra. Þær eiga kannski eftir að vera saman í bekk einhvern tímann í framtíðinni? Stokkhólmsprinsessan á eftir að fá nafn, og bíð ég spennt eftir að heyra hvað hún á að heita...ég veðja á Kristín!:)


7 Comments:
Vá, hélt bara að þetta væri Kristina áður en ég skrollaði lengra niður :D Skemmtilega líkar :)
Gaman að heyra að það sjá þetta fleiri en við:-)
Vá ég sá það ekki :)
HD
Hehehe, ekki ég heldur! En ég er líka orðin skemmd af barnleysi... finnst öll börn alveg eins fram undir tveggja ára aldurinn :/
Kv.
Sigrún Ósk
P.S. Ertu viss um að vinnir þínir á blogspot vilji ekki láta mann skrifa eins og eina ritgerð til staðfestingar á að maður sé ekki að spamma? Svona fyrst þeir eru byrjaðir... Hvað er málið með stafafjöldann??
oooooooog þetta átti að sjálfsögðu að vera "vinir þínir" en ekki "vinnir"...
Þessir allra gáfuðustu voru nú kannski búnir að reikna það út, hehe ;)
SÓK
Hvað sér fólk ekki? Að þetta er ekki Kristina eða að þær séu líkar?:)
Sigrún: Nákvæmlega! Hvað er málið með þessa stafi? Stundum renna r og n saman og ég held að það sé m... ég er nánast lengur að skrifa staðfestingarkóðann en ég er að skrifa sjálft kommentið!
Það getur vel verið að öll börn undir tveggja séu eins, en Kristina er sætust af þeim;-) hehe
Ég sé ekki hversu rosalega líkar þær eru :)
HD
Post a Comment
<< Home