Sunday, February 25, 2007

Elsku mamma er búin að vera hjá okkur síðan á miðvikudaginn, og það er svo ljúft...:) Í sömu andrá og hún kom inn um dyrnar byrjaði litla krílið að fá magakveisu, sem stóð á í 3 daga, og það er því búið að vera æðislegt að hafa 2 auka hendur til þess að ganga um gólf. Mamma er galdrakvendi að auki, því henni tekst að svæfa Kristinu á 5 sek! Hún er búin að sofa eins og engill á milli kveisa. Ég er líka búin að koma mun meiru í verk en venjulega á meðan mamma hefur verið hérna, m.a. leikfimisæfingarnar mínar tvisvar;-) Svo fór ég á árshátíð í gær hjá félagi læknanema í Danmörku, sem haldin var hér í Odense. Ég hélt það út til kl.22.30, svo gat ég ekki verið lengur frá litla barninu mínu:) En það var rosalega gaman.
Í kvöld var enn einn lúxusinn, ég og Jákup fórum í bíó! Mamma gaf bara pela á meðan og svæfði hana eins og henni einni er lagið... Við sáum Night at the Museum. Hún var vitlaus, en skemmtileg.

Við elduðum Dyrhamra kjúklinginn áður en við fórum í bíó. Hann klikkar ekki. Nú er ég algjörlega andlaus varðandi mat á morgun. Þoli ekki hvað ég er full af hugmyndum suma daga, og gjörsamlega tóm aðra daga. Samt er frystirinn fullur af mat!

5 Comments:

At 10:00 PM, Blogger Halldís said...

sjáumst á morgun, hlakka til að hitta Kristinu þó ég hafi bara verið í burtu í nokkra daga :)

 
At 6:41 PM, Anonymous Anonymous said...

Hún mamma þín er snillingur :)

Knuuuus (danskt) á ykkur,

Sigrún Ósk

 
At 7:32 PM, Blogger Ásta said...

Takk fyrir, segi henni það;-)

 
At 8:07 PM, Anonymous Anonymous said...

þokkalega sem ég er sammála þessu með andleysi sumra daga :( en þegar maður er fullur af hugmyndum ætti maður að skrifa niður! Búa til matseðil til góða:)

HD

 
At 11:19 PM, Blogger Ásta said...

Nákvæmlega!

 

Post a Comment

<< Home