Wednesday, February 14, 2007

Yoga og hor

Kristina er loksins að ná sér af kvefinu og hóstanum, og ég var sjálf loksins hitalaus í nótt. Nú er Jákup orðinn veikur! Það á ekki af okkur að ganga! Ég er uþb að fríka út í þessari einangrun! Ég get ekki hitt neinn með lítil börn, af því að ég vill ekki smita frá okkur. Og allir aðrir eru uppteknir. Halldís er búin að bjarga geðheilsu minni með því að hringja og kíkja í heimsókn! Takk elskan;)

Það verður svo gott að fá mömmu í heimsókn í næstu viku, ég hlakka svo til að sjá Kristinu sjarmera hana eins og hún gerir við okkur:) Og geta hlaðið upp batterýin eftir erfiða síðustu viku. En dóttir mín er algjört yndi. Hún er svo glöð og ánægð og fyndin. Það er ekki slæmt að vera í einangrun með henni;)

Ég fór í yoga á föstudaginn (það eina sem ég gerði alla vikuna) og Kristina svaf allan tímann í burðarrúminu, svo ég gat gert allar æfingarnar (og þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að hún smitaði hin börnin):) Ég er eins stirð og spítukall! Kennarinn blandar inn í þetta styrktaræfingum fyrir bak, rass, læri og grindarbotninn, og mikið hata ég rassæfingar! En það er gott eftir á;-) Ég var með harðsperrur daginn eftir í fyrsta sinn í marga mánuði, góð tilfinning... Hlakka til að halda áfram í yoga og vonandi verð ég aðeins liðugri þegar lengra líður á námskeiðið! Þá get ég stolt skellt mér í yoga á Indlandi með þér Sigrún;-)

4 Comments:

At 10:49 AM, Blogger Halldís said...

ánægjan er öll mín :)

 
At 8:53 PM, Anonymous Anonymous said...

HEHEHE já rassæfingarnar verða meiriháttar eftir nokkrar vikur :) Skil þig vel - við Lalli erum í Rope Yoga og maður finnur hressilega fyrir þessu - mikil gleði. gaman gaman

 
At 8:53 PM, Anonymous Anonymous said...

p.s Helga Dröfn hér :)

 
At 9:12 PM, Blogger Ásta said...

Algjör snilld;-)

 

Post a Comment

<< Home