Ooooo, mig dreymdi í nótt að ég hefði unnið 5 milljónir danskar - í spilakassa! Ekki slæmt það! Ég var byrjuð að láta mig dreyma um hvað ég ætlaði að gera við peningana. Efst á lista var að kaupa hús handa mömmu og pabba! Aðallega held ég af því að það er ekkert pláss fyrir mig þegar ég kem í heimsókn:) Eigingjörn gjöf! hehe
Jákup er loksins búinn að játa því að fara til Íslands á kandídatsárið, það er eiginlega ekkert vit í öðru. Hvernig eigum við annars að geta bæði unnið sólarhringsvaktir með lítið barn? Nú er ég svo spennt að klára, mér er farið að liggja á! :-D Tvö ár......

4 Comments:
Vei, vei, vei!! Ég er líka hæstánægð með þessa ákvörðun - enda ekkert vit í öðru eins og þú segir, hehe.
Verst með fimm millurnar. Mig dreymdi líka einu sinni að ég væri að keppa í Bingó lottó. Eina sem ég þurfti að gera var að ýta aftur og aftur á takka þegar ég heyrði hljóð og ég átti orðið fáránlega mikinn pening... Vaknaði með sælubros á vör sem hvarf fljótlega þegar ég uppgötvaði að ég hafði verið að ýta á snooze takkann á nýju vekjaraklukkunni minni og var orðin þremur tímum of sein í vinnuna!! :/ Erfitt að vera ljóshærður...
Og seint koma komment en koma þó (var að koma úr fimm daga ferðalagi og ekki búin að sjá yogafærsluna að neðan): Ég er sjálf að slá Indlandsmet í yoga-skrópi! En ef þú mætir á svæðið munum við báðar fá þetta lið til að svima af hrifningu, hehehe.
Knús á ykkur familíuna!
Sigrún Ósk
Ups, ansi leiðinlegur misskilningur vekjaraklukka vs. bingólotto! Hehe
Þetta yoga dót er alveg fáránlega erfitt! Ég er svo mikið að einbeita mér að því að gera hreyfingarnar nokkurn veginn í takt við kennarann, að ég næ aldrei að spenna eða teygja nóg á meðan, og fæ því ekki nógu mikið út úr þessu enn. En það skal koma!:) Ég er að líka að reyna að þjálfa Kristinu til þess að sofa á meðan...síðast þurfti ég að gefa henni mitt í magaæfingunum!
Ég væri svo til í að sjá hvort það sé meiri yoga bragur yfir þessu á Indlandi... en af sögum ykkar að dæma -NEI:-) hihi
Knús til Indlands!
Ég hélt að ég hefði séð Jákup í dag í umferðinni á íslandi. Hvarflaði eitt augnablik að mér að ég hefði misst af því að þið hefðuð flýtt ferðinni. En ég komst að þeirri niðurstöðu að þetta hlyti bara að hafa verið tvífari hans. (nota bene - ég sá hann bara í prófíl og í bíl sem keyrði framhjá mér)
Kv Helga Dröfn :)
Þetta hefur bara verið tvífarinn, við erum hérna enn;-) Ég verð að segja honum að það sé annar svona myndarlegur þarna í Reykjavíkinni hehe.
Post a Comment
<< Home